Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Ákall til formanna stjórnmálaflokka og þingflokka á Alþingi

Ákall til formanna stjórnmálaflokka og þingflokka á Alþingi

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hvetur forystufólk flokka á Alþingi til að sjá til þess að frumvarp utanríkisráðherra um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, þskj. 85 - 85. mál, kennt við bókun 35, hljóti afgreiðslu fyrir þinglok á yfirstandandi þingi. Eins og kunnugt er snýst málið um að lagaákvæði sem réttilega innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum gangi framar öðrum ósamrýmanlegum lagaákvæðum og það sama gildi um stjórnvaldsfyrirmæli (t.d. reglugerðir).

Fjölmörg mál eru nú komin eða á leið fyrir dómstóla þar sem reynir á slíkar reglur er varða gríðarlega hagsmuni tugþúsunda neytenda og almennra borgara hér á landi. Afar mikilvægt er að hlutaðeigandi einstaklingar geti treyst því að reglur sem þeir eiga að geta byggt réttindi sín á, haldi þegar á reynir og geti ekki þurft að víkja fyrir öðrum lakari reglum sem kynnu að stangast á við þær.

Jafnframt eru gríðarlegir almannahagsmunir í húfi því ef einkaaðilar geta komist upp með brot gegn réttindum íslenskra neytenda sem leiða af EES-samningnum vegna annmarka á íslenskri löggjöf, getur íslenska ríkið orðið skaðabótaskylt fyrir tjón sem hlýst af því. Hættan á því að slíkar byrðar geti fallið af herðum brotlegra aðila yfir saklausa skattgreiðendur er óásættanleg og verður að afstýra.

Að sjálfsögðu má aðeins gera kröfu um það eitt að hver og einn þingmaður fylgi sannfæringu sinni í hverju máli fyrir sig. Við förum ekki heldur fram á annað en að það verði gert í þessu tiltekna máli með því að taka það til afgreiðslu og leiða til lykta með atkvæðagreiðslu. Fulltrúar þingflokka hafa nú þegar komið afstöðu sinni til málsins rækilega á framfæri og er því ekki eftir neinu að bíða.

Til verndar heildarhagsmunum neytenda,

stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Sjá umsögn HH um frumvarpið

Lesa áfram...
Skrifstofan lokuð í júlí

Skrifstofan lokuð í júlí

Skrifstofa Hagsmunasamtaka heimilanna er lokuð í júlímánuði. Starfsmenn samtakanna eru í sumarleyfi. Við viljum biðja þau sem þurfa á ráðgjafarþjónustu Hagsmunasamtaka heimilanna að halda að sýna biðlund og hafa samband í byrjun ágúst. Á vefsíðu okkar má finna upplýsingar um þjónustu Hagsmunasamtaka heimilanna fyrir þau sem hafa áhuga á að óska eftir aðstoð. Við tökum vel á móti öllum sem til okkar leita og stöndum vörð um hagsmunamál félagsmanna.

Lesa áfram...
Niðurstöður aðalfundar 2025

Niðurstöður aðalfundar 2025

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2025 var haldinn 20. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

  • Guðmundur Ásgeirsson formaður
  • Sigríður Örlygsdóttir varaformaður
  • Guðrún Bryndís Harðardóttir gjaldkeri
  • Jónas Yngvi Ásgrímsson ritari
  • Guðrún Hulda Ólafsdóttir meðstjórnandi
Lesa áfram...
Ársskýrsla 2024-2025

Ársskýrsla 2024-2025

Samkvæmt venju eru fundargögn birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundar í formi ársskýrslu. Félagsmenn eru minntir á aðalfundinn kl. 20:00 fimmtudaginn 20. febrúar 2025, í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42, 105 Reykjavík. Þegar framboðsfrestur rann út höfðu borist eftirfarandi tilkynningar um framboð til stjórnar.

Lesa áfram...
Aðalfundur 2025

Aðalfundur 2025

Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, fimmtudagskvöldið 20. febrúar 2025 kl. 20:00, í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42, í Reykjavík. Skrifstofa samtakanna er nú í húsi ÖBÍ, ásamt ýmsum félagasamtökum sem starfa að réttindamálum almennings. Aðalfundur verður haldinn í miðrými hússins og gengið er inn um aðaldyr við vesturenda byggingarinnar.

Dagskrá:

  1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar: Guðmundur Ásgeirsson, formaður
  3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
  4. Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
  5. Tillögur um breytingar á samþykktum
  6. Kosning stjórnarmanna
  7. Kosning varamanna
  8. Kosning skoðunarmanna
  9. Önnur mál

Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 13. febrúar kl. 20:00. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

ATHUGIÐ! Ef staðfesting á móttöku framboðs berst ekki í svari frá samtökunum, vinsamlegast tryggið þá móttöku þess með símtali til Hagsmunasamtaka heimilanna, í númerið 546-1501 á milli 10 og 14 alla virka daga.

Einnig er óskað eftir tilnefningum skoðunarmanna og sjálfboðaliðum í talningu atkvæða á fundinum. Fundargögn verða birt á heimasíðu samtakanna www.heimilin.is í aðdraganda aðalfundarins.

Hvatning til þátttöku - framboð félagsmanna!

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi Hagsmunasamtaka heimilanna? Um átta þúsund félagsmenn eru í Hagsmunasamtökum heimilanna. Félagsmenn geta boðið fram starfskrafta sína með því að senda tilkynningu um framboð í tölvupósti á skrifstofu samtakanna. Samtökin hafa lengi starfað lýðræðislega að hagsmunamálum lántakenda og heimilanna í landinu, með áherslu á húsnæðismál og kröfur um sanngjörn lánsskilyrði í þágu almennings og réttlátara þjóðfélags. 

Samtökin reka óháða ráðgjafaþjónustu og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn, fylgjast grannt með störfum stjórnvalda og þróun löggjafar, senda frá sér umsagnir um hin ýmsu mál, tilkynningar til fjölmiðla þegar við á og margt fleira. Fráfarandi stjórn hvetur þá félagsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna sem hafa áhuga á, eða búa yfir þekkingu á baráttumálum samtakanna, til þess að gefa kost á sér í stjórnarstarf. 

Hagsmunasamtök heimilanna eru skráð hjá fyrirtækjaskrá sem almannaheillafélag samkvæmt lögum um félög til almannaheilla og á almannaheillaskrá Skattsins.

Með góðri kveðju,

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna



Lesa áfram...
Breyting á stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Breyting á stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hefur sagt sig úr stjórn samtakanna og þar með frá formennsku. Ásthildur Lóa sagði sig úr stjórninni 22. desember 2024 þegar hún tók við embætti Mennta- og barnamálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Íslands. Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna þakkar Ásthildi Lóu fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna á liðnum árum og óskar henni hjartanlega til hamingju með hina nýju stöðu.

Guðmundur Ásgeirsson, varaformaður, gegnir hlutverki formanns Hagsmunasamtaka heimilanna fram að næsta aðalfundi sem er fyrirhugaður 20. febrúar næstkomandi.

Lesa áfram...
Kjósum með heimilunum!

Kjósum með heimilunum!

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna ályktar að fráfarandi ríkisstjórn hafi brugðist því hlutverki sínu að standa vörð um heimilin og verja þau fyrir íþyngjandi áhrifum verðbólgu og vaxtahækkana á greiðslubyrði húsnæðisskuldbindinga almennings. Skortur á framsýni í húsnæðismálum hefur leitt til framboðsskorts og stjórn efnahagsmála brugðist með þeim afleiðingum að sífellt molnar undan þeim sjálfsögðu mannréttindum allra að eiga kost á viðunandi húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Ítrekaðar áskoranir

Hagsmunasamtök heimilanna voru meðal þeirra fyrstu til að sjá blikur á lofti fyrir fjórum árum og hafa síðan þá beint ítrekuðum áskorunum til stjórnvalda um að ráðast í aðgerðir til þess að verja heimilin. Því miður hefur lítið verið tekið mark á þessum aðvörunum og afleiðingarnar blasa við. Nú þegar kosningar eru á næsta leyti hvetjum við því kjósendur til að ráðstafa atkvæðum sínum eins og þeim þykir þau nýtast best í þágu heimilanna. Við hvetjum landsmenn þó til að horfa til verka og gjörða og hvaða stjórnmálaflokkar hafa sýnt það með fyrri verkum að þeir starfa skilyrðislaust að hagsmunamálum heimilanna.

Nokkrar áskoranir og tilkynningar Hagsmunasamtaka heimilanna frá 2020-2024:

26.03.2020: Tryggjum heimilunum skjól undir öruggu þaki

15.09.2020: ÍTREKUN-Tryggjum heimilunum skjól undir öruggu þaki

19.05.2020: Eiga bankar að hagnast á Covid-19?

02.09.2021: Bankarnir skulda heimilunum lægri vexti

15.12.2021: Aðvörun til neytenda vegna vaxtabreytinga Íslandsbanka

09.05.2022: Tryggjum að enginn missi heimili sitt vegna verðbólgu og vaxtahækkana!

10.08.2022: Aðgerðir gegn verðbólgunni verri en verðbólgan sjálf

20.09.2022: Fátækragildra verðtryggðra lána

01.05.2023: Heimilin eiga að vera friðhelg 

05.06.2024 Vaxtastuðningur dropi í hafið

28.06.2024 Við krefjumst tafarlausrar vaxtalækkunar

22.08.2024 Í stríði gegn heimilunum

Kjósum með heimilunum!


Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna



Lesa áfram...
Við mótmælum...

Við mótmælum...

Á björtu og köldu haustsíðdegi við þingsetningu Alþingis 10. september síðastliðinn stóðu stéttarfélög og heildarsamtök launafólks sameinuð að mótmælum við Austurvöll. Alþýðusamband Íslands, BSRB og Kennarasamband Íslands mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda í efnahagsmálum. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR var fundarstjóri og ræðumenn voru Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis. Um fimmhundruð mótmælendur voru mættir til að hlýða á formenn stéttarfélaganna. Formaður VR og fundarstjóri talaði um tímamótamótmæli heildarsamtaka launafólks og gagnrýni á stöðu efnahagsmála, áhrif þeirra á fjárhag heimilanna og aðgerðaleysi stjórnvalda. Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna tók þátt í mótmælunum og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður samtakanna og alþingiskona fyrir Flokk fólksins sendi frá sér skoðanagrein á Vísi með Ragnari Þór Ingólfssyni daginn fyrir viðburðinn. Í grein þeirra voru áhrif verðbólgu á fjárhag heimila og lánþega harðlega gagnrýnd. Hér er grein Ragnars Þórs Ingólfssonar og Ásthildar Lóu Þórsdóttur: 

Lesa áfram...
Í stríði gegn heimilunum

Í stríði gegn heimilunum

Vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær er ekkert annað en stríðsyfirlýsing gegn heimilum landsins. Hvergi á byggðu bóli voga seðlabankar sér að fara gegn heimilum landsins með viðlíka hætti og hér og hvergi á byggðu bóli hefur verðbólgan haldist jafn há og hér. Hvert mannsbarn með vott af skynsemi ætti að sjá að vaxtahækkanir Seðlabankans hafa fyrir löngu síðan snúist upp í andhverfu sína og auka beinlínis vandann sem þær eiga að glíma við. Fyrir hverja er verið að berjast við verðbólguna ef ekki fyrir fólkið í landinu?

Fólkið í landinu er ekki til fyrir fjármálafyrirtækin og líf þess á ekki að snúast um að fóðra þau.

Aðgerðaleysi ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar og þar áður þessarar sömu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, gagnvart þessu áhlaupi á heimilin er óverjandi, en því miður ekki fordæmalaust.

Lesa áfram...
Við krefjumst tafarlausrar vaxtalækkunar

Við krefjumst tafarlausrar vaxtalækkunar

Ársverðbólga er nú 5,8% og hefur ekki mælst lægri í tvö og hálft ár eða frá ársbyrjun 2022. Þá voru meginvextir Seðlabanka Íslands 2% en hafa síðan hækkað í 9,25% þar sem þeir hafa nú staðið í 10 mánuði, sem verða að óbreyttu orðnir 12 þegar næsta vaxtaákvörðun er á dagskrá 21. ágúst, þrátt fyrir að verðbólgan hafi lækkað um 43% frá því að hún náði hámarki í febrúar 2023.

Seðlabankinn er fyrir löngu komin á algjörar villigötur með hávaxtastefnu sinni sem ekki stenst nokkra skoðun auk þess að valda heimilum og fyrirtækjum landsins stórfelldum skaða, sem þau verða lengi að jafna sig á.

Húsnæðisverð hefur verið stærsti drifkraftur verðbólgunnar og eina leiðin til að halda aftur af hækkun þess er að auka framboð húsnæðis. Vegna íþyngjandi fjármagnskostnaðar hefur samt dregið úr nýbyggingum og vaxtastefnan er þannig beinlínis farin að vinna gegn tilgangi sínum.

Lesa áfram...
Spurt og svarað um vaxtamálin

Spurt og svarað um vaxtamálin

Hvað eru “vaxtamálin”?

Vaxtamálin er samheiti sem má segja sem svo að nái yfir málaferli sem hafa staðið yfir um nokkra hríð um lögmæti skilmála um breytilega vexti í lánum neytenda á Íslandi.

Hvert er helsta álitaefnið?

Neytendur og samtök þeirra sem standa að málunum telja að í all flestum tilvikum séu þeir skilmálar sem kveða á um breytilega vexti í neytendalánum og fasteignalánum til neytenda ekki í samræmi við lög og reglur. Í einfölduðu máli standist skilmálarnir ekki þær kröfur sem verður að gera um skýrleika, aðgengileika, hlutlægni og sannreynanleika, svo neytendur geti áttað sig á þýðingu þeirra og þar með umfangi þeirra fjárhagslegu skuldbindinga sem þeir gangast undir þegar þeir taka lán.

Lesa áfram...
Vaxtastuðningur dropi í hafið

Vaxtastuðningur dropi í hafið

Vaxtastuðningur ríkisstjórnarinnar er í skötulíki eins og annar „stuðningur“ hennar við heimilin. Hann er í fyrsta lagi varla upp í nös á ketti í samanburði við þann gríðarlega vaxtakostnað sem hefur verið lagður á skuldug heimili landsins og í öðru lagi er honum ráðstafað beint til lánveitenda sem greiðsla inn á höfuðstól fasteignalána.

Hagsmunasamtök heimilanna gagnrýndu strax í umsögn sinni um málið að upphæðin greiddist sjálfkrafa inn á höfuðstól húsnæðislána sem lækkar greiðslubyrði þeirra mjög lítið. Sem dæmi myndu mánaðarlegar greiðslur af dæmigerðu 50 milljón króna óverðtryggðu láni aðeins lækka um á bilinu 1.300-2.300 krónur með þessu.

Þetta er dropi í hafið og mun ekki bjarga miklu fyrir heimili sem glíma við greiðslubyrði sem hefur hækkað um hundrað sinnum hærri upphæðir á mánuði. Stjórnvöld ættu miklu frekar að einbeita sér að því að lækka vaxtagjöld heimilanna en að færa almannafé aftur til skattgreiðenda með svona sjónhverfingum og kalla það “stuðning”.

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum