Aðalfundur 2026
Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, fimmtudagskvöldið 19. febrúar 2026 kl. 20:00, í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42 í Reykjavík, þar sem samtökin hafa aðsetur ásamt ýmsum félagasamtökum sem starfa að réttindamálum almennings. Aðalfundurinn verður haldinn í miðrými hússins og gengið er inn um aðaldyr við vesturenda byggingarinnar.
Dagskrá:
1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
2. Skýrsla stjórnar: Guðmundur Ásgeirsson, formaður
3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
4. Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
5. Tillögur um breytingar á samþykktum
6. Kosning stjórnarmanna
7. Kosning varamanna
8. Kosning skoðunarmanna
9. Önnur mál
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 12. febrúar kl. 20:00. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
ATHUGIÐ! Ef staðfesting á móttöku framboðs berst ekki fljótlega í svarpósti, vinsamlegast tryggið þá móttöku þess með símtali til Hagsmunasamtaka heimilanna, í númerið 546-1501 á milli 10 og 14 alla virka daga.
Einnig er óskað eftir tilnefningum skoðunarmanna og sjálfboðaliðum í talningu atkvæða á fundinum. Fundargögn verða birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundarins.
Vilt þú taka þátt í starfi samtakanna?
Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi Hagsmunasamtaka heimilanna? Hátt í átta þúsund félagsmenn eru í samtökunum. Félagsmenn geta boðið fram krafta sína með því að senda tilkynningu um framboð í tölvupósti til samtakanna. Samtökin hafa lengi starfað lýðræðislega að hagsmunamálum lántakenda og heimilanna í landinu, með áherslu á húsnæðismál og kröfur um sanngjörn lánsskilyrði í þágu almennings og réttlátara þjóðfélags.
Samtökin starfrækja óháða ráðgjafarþjónustu og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn, fylgjast grannt með störfum stjórnvalda og þróun löggjafar, senda frá sér umsagnir um hin ýmsu mál, tilkynningar til fjölmiðla þegar við á og margt fleira. Fráfarandi stjórn hvetur þá félagsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna sem hafa áhuga á, eða búa yfir þekkingu á baráttumálum samtakanna, til þess að gefa kost á sér í stjórnarstörf.
Hagsmunasamtök heimilanna eru skráð hjá fyrirtækjaskrá sem almannaheillafélag samkvæmt lögum um félög til almannaheilla og á almannaheillaskrá Skattsins.
Hagsmunasamtök heimilanna

