Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi á vegum Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur hafið störf. Markmiðið hópsins er að kortleggja stöðuna á lánaframboði og í framhaldi greina og meta hvort og þá hvernig megi innleiða nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi. Hagsmunasamtök heimilanna eiga fulltrúa í starfshópnum, en í honum sitja einnig fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands. Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson fyrrverandi stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna og fulltrú samtakanna í starfshópnum er Guðmundur Ásgeirsson formaður stjórnar og sérfræðingur samtakanna í lánaviðskiptum heimilanna og lánaskilmálum.

Markmið starfshópsins eru:

Að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.

Að greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Erlendar fyrirmyndir verða hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, greinir frá því í tilkynningu frá ráðuneytinu að skipun hópsins sé í samræmi við áherslu stjórnvalda í húsnæðismálum.

Hagsmunasamtök heimilanna 

 
19. mars 2026 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið: Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi tekur til starfa

 


© Hannað af Filmís 

 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum