Styrkur til hagsmunagæslu lántakenda
Hagsmunasamtök heimilanna hafa tekið á móti rekstrarstyrk frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu fyrir hagsmunagæslu lántakenda. Hagsmunir lántakenda eru leiðarstef í starfseminni með kröfu um betri lánskjör og að réttur allra til heimilis sé virtur sem grundvallarmannréttindi. Á liðnu ári tóku samtökin á móti og afgreiddu 192 fyrirspurnir félagsmanna og sendu frá sér 31 umsögn um löggjafarmál. Samtökin voru stofnuð í efnahagshruninu og starfsemin byggir að stóru leyti á reynslu félagsmanna frá þeim tíma en megintilgangur hennar er að standa vörð um réttindi og hagsmuni félagsmanna og vinna að forvörnum gagnvart alvarlegum greiðsluvanda.
Ákall til formanna stjórnmálaflokka og þingflokka á Alþingi
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hvetur forystufólk flokka á Alþingi til að sjá til þess að frumvarp utanríkisráðherra um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, þskj. 85 - 85. mál, kennt við bókun 35, hljóti afgreiðslu fyrir þinglok á yfirstandandi þingi. Eins og kunnugt er snýst málið um að lagaákvæði sem réttilega innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum gangi framar öðrum ósamrýmanlegum lagaákvæðum og það sama gildi um stjórnvaldsfyrirmæli (t.d. reglugerðir).
Fjölmörg mál eru nú komin eða á leið fyrir dómstóla þar sem reynir á slíkar reglur er varða gríðarlega hagsmuni tugþúsunda neytenda og almennra borgara hér á landi. Afar mikilvægt er að hlutaðeigandi einstaklingar geti treyst því að reglur sem þeir eiga að geta byggt réttindi sín á, haldi þegar á reynir og geti ekki þurft að víkja fyrir öðrum lakari reglum sem kynnu að stangast á við þær.
Jafnframt eru gríðarlegir almannahagsmunir í húfi því ef einkaaðilar geta komist upp með brot gegn réttindum íslenskra neytenda sem leiða af EES-samningnum vegna annmarka á íslenskri löggjöf, getur íslenska ríkið orðið skaðabótaskylt fyrir tjón sem hlýst af því. Hættan á því að slíkar byrðar geti fallið af herðum brotlegra aðila yfir saklausa skattgreiðendur er óásættanleg og verður að afstýra.
Að sjálfsögðu má aðeins gera kröfu um það eitt að hver og einn þingmaður fylgi sannfæringu sinni í hverju máli fyrir sig. Við förum ekki heldur fram á annað en að það verði gert í þessu tiltekna máli með því að taka það til afgreiðslu og leiða til lykta með atkvæðagreiðslu. Fulltrúar þingflokka hafa nú þegar komið afstöðu sinni til málsins rækilega á framfæri og er því ekki eftir neinu að bíða.
Til verndar heildarhagsmunum neytenda,
stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Mótmælum stafrænum nauðungarsölum!
Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla alfarið fyrirhuguðu frumvarpi dómsmálaráðherra um stafrænar nauðungarsölur. Það á ekki að líðast að hægt verði að svipta fólk heimili sínu einfaldlega með því að senda tölvupóst. Sérstaklega ekki nema tryggt verði að því hafi að minnsta kosti fyrst borist tilkynning um að hætta á slíku sé yfirvofandi svo hægt sé að bregðast við í tæka tíð.
Frumvarp í samráðsgátt
Með drögum að frumvarpi sem dómsmálaráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda er lagt til að stafræn málsmeðferð verði innleidd í fjárnáms- og nauðungarsölumálum. Yfirlýstur tilgangur þess er að auka hagræði og skilvirkni, en við nánari athugun blasir við að það yrði alfarið í þágu kröfuhafa og á kostnað réttaröryggis almennra borgara.
Stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra
Umsögn
Hagsmunasamtök heimilanna sendu í gær umsögn um stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra inn í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögninni er fjallað efnislega um þær breytingar sem forsætisráðherra leggur til að verði gerðar á stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins.

