Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Hag­kvæmt hús­næði á hag­kvæmum kjörum

Hag­kvæmt hús­næði á hag­kvæmum kjörum

Bankarnir hagnast um 93 milljarða á einu ári. Væri þessum hagnaði deilt á íslendinga þá fengi hver og einn í sinn hlut um þrjú hundruð þúsund krónur. Fyrir flesta er það dágóð summa sem munar um. Þessi hagnaður er fyrst og fremst tilkominn vegna vaxtamunar þar sem hávextir og verðbætur búa til tekjurnar.

Á sama tíma og bankarnir hagnast og fitna eins og púkinn á fjósbitanum eiga fjölskyldur í erfiðleikum með að ná endum saman. Bankarnir eru búnir að gulltryggja sig með því að lána heimilunum verðtryggð lán með okurvöxtum í boði seðlabankastjóra og nú er svo komið að ungt fólk á í erfiðleikum með að kaupa sína fyrstu fasteign. Bróðurpartur ráðstöfunartekna heimilanna fer í vexti og afborganir eða verðtryggða húsaleigu.

Seðlabankastjóri lætur eins og eina leiðin til að ná niður verðbólgu sé sú að hækka vexti á lánum sem tekin voru undir allt öðrum forsendum en þeim sem eru í dag. Þannig bíta stýrivaxtahækkanir mest á þeim sem skulda, og tóku lán jafnvel fyrir einhverjum árum síðan. Forsendur fjölskyldna til að standa í skilum gufa upp um leið og fyrsta afborgun fellur í gjalddaga.

Til að aðstoða unga fólkið við að komast í eigin íbúð stendur ríkisstjórnin fyrir aðgerðum við að byggja hentugt, hagkvæmt húsnæði en það er ekki nóg ef vextir lánanna eru í hæstu hæðum. Nú þarf annað átak ríkisstjórnarinnar. Þannig er að Landsbankinn er að mestu leyti í eigu ríkisins og því getur ríkið sem eigandi ráðið talsverðu um eigendastefnu bankans. Ég legg til að eigandi bankans sjá til þess að hann stofni nýjan lánaflokk sem væri eingöngu fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði. Þessi lánaflokkur yrði ekki verðtryggður með neinni vísitölu og með hóflegum föstum vöxtum allan lánatímann. Þetta myndi verða til þess að ungt fólk gæti allt í einu skipulagt fjármálin og átt fyrir fasteigninni. Afborganir lána yrðu jafnar og vitneskjan um upphæð afborgana væri þekkt frá mánuði til mánaðar. Auðvitað þarf að setja upp alls konar sanngjarnar reglur og girðingar þannig að þessi lánaflokkur yrði ekki misnotaður og ég held að bankinn eigi ekki í erfiðleikum með að gera það, enda með helling af alls konar fræðingum í vinnu.

Vissulega myndi þetta tákna að hagnaður Landsbankans myndi minnka eitthvað en er það ekki í góðu lagi. Samfélagið á ekki að vera byggt upp þannig að almenningur noti meirihluta ráðstöfunarfjár síns til þess að greiða fjármagnseigendum sífellt stærri hluta. Þetta yrði fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar og í framhaldinu yrði áhersla markaðarins á að halda niðri verðbólgu með öðrum leiðum en sífelldum stýrivaxtahækkunum.

Krafan er því hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum.

Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna

 

Hag­kvæmt hús­næði á hag­kvæmum kjörum - eftir Jónas Yngva Ásgrímsson (Vísir.is - 2. mars 2026) 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum