Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Ný lögbannskrafa vegna innheimtu gengistryggðra lána

Í gær lögðu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmaður neytenda fram nýja lögbannskröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu þessa efnis þann 27. apríl síðastliðinn á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð.  Gerðarbeiðendur vildu ekki una þeim úrskurði og í kröfunni sem lögð var fram í gær er nánari skýring á því við hvaða gengistryggðu lán er átt, auk þess sem skýrðar eru þær ótvíræðu afleiðingar sem innheimta greiðsluseðla ólögmætra gengistryggðra lána hefur fyrir neytendur. Úrskurðar sýslumanns er að vænta fyrir lok vikunnar eða í byrjun þeirrar næstu.

 

Lesa áfram...

Aðalfundur HH í kvöld, fimmtudag

Aðalfundur HH verður í kvöld, fimmtudag 31. maí kl. 20:00-22:30 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.


Stjórn HH hvetur félagsmenn til að gefa sér tíma til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á val stjórnar, breytingar á lögum samtakanna og fylgjast almennt með störfum samtakanna. Samtökin starfa á lýðræðislegum grunni eftir lýðræðislegum hugsjónum og því aðhald og aðkoma félagsmanna mikilvæg.

Dagskrá fundarins verður sem hér segir


1. Setning

2. Skýrsla stjórnar:  Andrea Ólafsdóttir, formaður stjórnar

3. Reikningar samtakanna:  Ólafur Garðarsson, gjaldkeri stjórnar

4. Lagabreytingar (sjá fundargögn á heimasíðu)

5. Kosning 7 manna stjórnar (sjá framboð til stjórnar á heimasíðu)

6. Kosning 7 varamanna

7. Kosning skoðunarmanna næsta árs

8. Önnur mál

a.   Umsókn HH að Landssamtökum heimilanna

Ragnar Þór Ingólfsson

b.  Tillaga stjórnar að árgjaldi 2012

Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa þannig bein áhrif á stefnu og starfsemi samtakanna.  Vinsamlega athugið að aðeins skráðir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarstarfa og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

 

Lesa áfram...

HH ætla ekki að una úrskurði sýslumanns

Á föstudag tilkynnti sýslumaður um úrskurð sinn varðandi lögbannsbeiðni Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána.  Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum en myndi vera fordæmisgefandi fyrir aðrar lánastofnanir.

Lesa áfram...

Ákvörðunar sýslumanns um lögbann á innheimtu að vænta fyrir mánaðarmót

Í boðaðri fyrirtöku hjá sýslumanni í síðustu viku vegna lögbannsbeiðni HH og talsmanns neytenda (TN) var lögmanni gerðarbeiðenda (HH og TM) gefinn frestur þar til í dag, til að kynna sér þau gögn sem gerðarþoli (Landsbankinn) lagði þar fram.  Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum (en er fordæmisgefandi) og er þar óskað eftir því að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla gengistryggðra lána.

í dag mættu HH og TN aftur til boðaðrar fyrirtöku þar sem sýslumaður frestaði málinu enn um viku til að Landsbankinn geti kynnt sér álitsgerð HH um Hæstaréttardóm nr. 600/2011, en álitið var lagt fram sem viðbótargögn í dag.

Ákvörðunar sýslumanns um það hvort lögbann verði lagt á innheimtu má vænta fyrir mánaðarmót og því réttast fyrir lántakendur að greiða ekki greiðsluseðla fyrr en í fyrsta lagi á eindaga.

Lesa áfram...

Lögbannsbeiðni á innheimtu gengistryggðra lána

Lögbannsbeiðni á innheimtu gengistryggðra lána sem HH hefur lagt fram ásamt talsmanni neytenda verður tekin fyrir hjá Sýslumanninum í Reykjavík að Skógarhlíð 6 fimmtudaginn 12. apríl, kl. 13.30. Lögbannsbeiðnin beinist að Landsbankanum en er fordæmisgefandi.  Í beiðninni er óskað eftir því að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla gengistryggðra lána vegna þess að þeir eru í öllum tilvikum rangt reiknaðir og því um ólöglega innheimtu að ræða. Eftir dóm Hæstaréttar þar sem afturvirkir vaxtaútreikningar voru dæmdir ólögmætir er ljóst að bankarnir eru í vanskilum við lántakendur sem hafa ofgreitt af þessum lánum um langa hríð.


 

Lesa áfram...

Verðtrygging og vextir: seinni hluti eftir Ólaf Margeirsson

umfjölluninni hér á eftir verður gengið út frá því að engin vandamál séu varðandi mælingu á verðbólgu, þ.e. virðisrýrnun gjaldmiðilsins, líkt og í fyrri hlutanum er bent á að hækki raunvexti lána. Slík forsenda er vitanlega empíriskt fráleit en jafnvel þótt hún eigi við er sýnt fram á að Fisher kenningin á ekki endilega alltaf við; það skiptir m.ö.o. máli hvernig verðtrygging er framkvæmd.

Lesa áfram...
Subscribe to this RSS feed

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum