Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Ekkert fast í hendi eftir fund í stjórnarráði

Fulltrúar HH áttu fund morguninn 6. okt. 2010 með forsætisráðherra, fjármálaráðherra, innanríkisráðherra, ráðherra velferðarmála og ráðherra efnahags og viðskipta ásamt efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Tilgangur fundarins var að kynna fyrir ríkisstjórninni tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna um þjóðarsátt um skuldavanda heimilanna.

Ráðherrarnir hlustuðu á tillögur og rökstuðning HH af athygli. Þeir virtust sammála mörgum af niðurstöðum okkar varðandi þann kerfisvanda sem þarf að leysa en höfðu miklar efasemdir sem fyrr um leiðréttingartillögur samtakanna. Fundarmenn sammæltust um að samningaleiðin væri líklega illskásta leiðin, þ.e. að allir aðilar fjármálakerfisins komi að borðinu til að leysa þann hnút sem þessi mál eru komin í. Við gerðum þeim grein fyrir þeim hættum og kostnaði sem það hefur í för með sér halda óbreyttri stefnu. Við erum ekki viss um að ríkisstjórnin geri sér grein fyrir afleiðingunum þ.e. því siðrofi og fólksflótta sem framundan er, sé haldið áfram á braut eignaupptöku og gjaldþrota.

Hagsmunasamtök heimilanna telja neyðarástand framundan sé ekki tekið strax á málum. Við höfum lagt fram tillögur sem eru fyllilega framkvæmanlegar að okkar mati en hugsanlega þurfi neyðarlög fyrir suma þætti þeirra. Nú hvetjum við fulltrúa lánastofnana og lífeyrissjóða til að koma að samningaborðinu með okkur ásamt ríkisstjórninni. Aðgerðirnar þurfa að vera samræmdar á milli þeirra aðila sem hlut eiga að máli, þ.e. neytendur (heimilin), fjármálastofnanir, lífeyrissjóðir og ríkið.

Eins og segir í fyrirsögn er ekkert fast í hendi og engin ástæða fyrir almenning að láta af þrýstingi um að vandi heimilanna sé leystur án frekari tafa. Tími nefnda og allskyns málþófs er liðinn. Nú þurfa menn að taka til hendinni og klára þetta mál. Verkefnið er að koma í veg fyrir samfélagslegt stórslys. HH hefur áður fengið fundi af þessu tagi en síðan ekki séð neitt gerast af hálfu stjórnvalda í kjölfarið. Vonandi er stjórnvöldum nú alvara með þessum viðræðum en ekki bara verið að kaupa tíma. Við sjáum til hvernig mál þróast næstu daga.


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum