Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Aðgerðir og aðgerðaleysi gagnvart verðbólgu

Aðgerðir og aðgerðaleysi gagnvart verðbólgu

Umsögn til Alþingis

Hagsmunasamtaka heimilanna hafa sent frá sér umsögn við frumvarp ríkisstjórnarinnar um mótvægisaðgerðir í verðbólgu. Með frumvarpinu leggur ríkisstjórnin til að bætur almannatrygginga hækki um 3% og húsnæðisbætur um 10%, auk þess að greiddur verði sérstakur barnabótaauki að fjárhæð 20.000 kr. með hverju barni til þeirra sem fá tekjutengdar barnabætur. Frumvarpið verður lagt fram í mánuðinum og með samþykki þingsins taka þessar hækkanir gildi 1. júní. 

Fulltrúar samtakanna voru kölluð til samráðs á fjarfundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, með fulltrúum Öryrkjabandalagsins og Leigjendasamtökunum.  

Hagsmunasamtök heimilanna eru fylgjandi þessum mótvægisaðgerðum en vöktu sérstaka athygli á því í umsögn sinni og á fundi efnahags- og viðskiptanefndar að engar aðgerðir hafa verið kynntar af hálfu ríkisstjórnarinnar sem gagnast útivinnandi fólki í eigin húsnæði.

Fólki sem greiðir af húsnæðislánum og þá ekki síst lágtekjufólki sem getur illa varið sig fyrir hækkandi greiðslubyrði fasteignalána. Oftar en ekki er það bundið klafa verðtryggra lána. 

Hér má finna umsögn samtakanna á vef Alþingis og frumvarp ríkisstjórnarinnar:

Umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um 678. mál á 152. löggjafarþingi

Í þessu samhengi, vilja samtökin minna á síendurtekin svikin loforð um afnám verðtryggingar á húsnæðis skuldbindingum heimilanna. Víða er verðbólga há í dag, en hvergi á Vesturlöndum nema á Íslandi er verðtrygging á fasteignalánum eða öðrum lánum heimilanna. Lán með svipaða eiginleika hafa víðast hvar verið bönnuð vegna neytendaverndarsjónarmiða, enda fátt annað en fátækrargildra. Íslensk heimili eiga rétt á heilbrigðu og sanngjörnu lánaumhverfi og húsnæðis skuldbindingum án verðtryggingar. Húsnæðismál eru mannréttindamál og ekkert réttlætir langvarandi og viðvarandi fjárhagslegt óöryggi landsmanna í húsnæðis skuldbindingum, hvort sem um er að ræða í krepputíð eða á hagvaxtarskeiði. 

Ljóst er að íslensku bankarnir myndu með góðu móti þola þá tekjuskerðingu sem myndi fylgja afnámi verðtryggingar á lánum heimilanna. Þá þarf ekki að fóðra meir!

Hagsmunasamtök heimilanna

 


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum