Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Niðurstöður aðalfundar 2022

Niðurstöður aðalfundar 2022

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2022 var haldinn 23. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
  • Guðmundur Ásgeirsson varaformaður
  • Sigríður Örlygsdóttir gjaldkeri
  • Einar Valur Ingimundarson ritari
  • Hafþór Ólafsson meðstjórnandi

Varamenn: Álfheiður Eymarsdóttir, Björn Kristján Arnarson, Ragnar Unnarsson og Stefán Stefánsson. Þau hafa flest starfað áður í stjórn samtakanna en Álfheiður Eymarsdóttir kemur ný inn í varastjórn.

Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld 2022 verði óbreytt 4.900 kr. og valkvæð sem fyrr. Þá voru skoðunarmenn reikninga samtakanna, Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir og Sólveig Sigurgeirsdóttir, endurkjörnar. Aðalfundur hefur einnig samþykkt skráningu samtakanna sem almannheillafélag og samþykkt breytingar á samþykktum Hagsmunasamtaka heimilanna til að uppfylla skilyrði til löglegrar skráningar.

Loks samþykkti aðalfundurinn eftirfarandi ályktun:

 

Ályktun aðalfundar Hagsmunasamtaka heimilanna 2022 um húsnæðismál

Það er frumskylda stjórnmálamanna að vernda lífsskilyrði vinnandi fólks og nú verða ráðamenn að stíga fram með margþættar lausnir í húsnæðismálum. Það er ekki lengur hægt að bjóða Íslendingum upp á ómannúðlegan húsnæðismarkað, ótryggan leigumarkað og verðtryggðar skuldbindingar í húsnæðismálum.

Verðtrygging lána og húsaleigu bitnar verst á lág- og millitekjuhópum og er því fátækrargildra. Ekki síst þegar verðbólga er há. Hvergi á Vesturlöndum er verðtrygging á fasteignalánum eða öðrum neytendalánum því lán með svipaða eiginleika hafa víðast hvar verið bönnuð vegna neytendaverndarsjónarmiða. 

Samtökin kalla eftir aðgerðum til framtíðar sem eru til þess fallnar að styrkja og bæta húsnæðisöryggi landsmanna á víðum grundvelli.




© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum