Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Lögbanns krafist á innheimtu Lýsingar vegna ólögmætra samninga

Í gær var lögð fram fyrir hönd HH lögbannskrafa hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem þess er krafist að innheimta Lýsingar hf. vegna ólögmætra gengistryggðra lána til tækja- og bílakaupa verði stöðvuð.



Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, fyrst þann 15. febrúar sl. í máli nr. 600/2012 og svo aftur þann 18. október í máli nr. 464/2012 að endurútreikningar gengistryggðra lána væru ólögmætir, þar sem óheimilt væri að reikna vexti afturvirkt á þegar greidda gjalddaga. Í síðarnefnda dómnum gekk Hæstiréttur lengra en áður með því að tiltaka nánar hvernig eigi að endurreikna lánin og meðhöndla greiðslur sem þegar hafa verið greiddar inn á lánið, auk þess sem segir að upphaflega umsamdir vextir lánsins skuli standa. Í kjölfarið lýstu forsvarsmenn Lýsingar því yfir að dómurinn næði ekki yfir samninga fyrirtækisins, og að ekki stæði til að hefja endurútreikninga í samræmi við hann að svo stöddu. Í framhaldinu hafa forsvarsmenn félagsins verið kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að gefa skýringar á þessari afstöðu sinni.

Hagsmunasamtök heimilanna nýta nú heimild sína á grundvelli laga nr. 141/2001 og leita lögbanns til að vernda heildarhagsmuni neytenda gagnvart innheimtuháttum Lýsingar vegna samninga sem innihalda ólögmæt gengistryggingarákvæði. Núverandi endurútreikningar eru að öllum líkindum  of háir, og hafa jafnvel margir lántakendur nú þegar greitt lán sín upp í raun og veru. Þess er krafist að innheimta verði ekki leyfð að nýju fyrr en réttir og sannanlega lögmætir endurútreikningar liggja fyrir í samræmi við dóma Hæstaréttar (nr. 600/2011 og nr. 464/2012).


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum