Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Rannsóknar krafist á aðkomu SFF að samráði vegna Hæstaréttardóms nr. 600/2011

HH hafa beint formlegu erindi til Samkeppniseftirlitsins með ósk um að hafin verði rannsókn á aðkomu Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) að samstarfi fjármálafyrirtækja og opinberra aðila í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2011 um fullnaðargildi kvittana o.fl.



Forsaga málsins er sú að í febrúar síðastliðnum óskuðu Samtök Fjármálafyrirtækja eftir undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga, vegna samráðs fjármálafyrirtækja um endurútreikning, málaferli og ýmis úrlausnarefni vegna óskuldbindandi samningsákvæða um gengistryggingu.

Þann 9. mars sl. féllst Samkeppniseftirlitið með ákvörðun sinni nr. 4/2012 á veitingu takmarkaðrar undanþágu fyrir slíku samstarfi. Að fengnum athugasemdum, þar á meðal frá Hagsmunasamtökum heimilanna, voru hinsvegar lögð afmarkandi skilyrði fyrir undanþágunni, ásamt viðurlögum við brotum á þeim. Ákvörðunin veitir aðeins fjármálafyrirtækjum sem stundað hafa útlánastarfsemi undanþágu, og í ákvörðunarorðum er áréttað bann við þátttöku samtaka fjármálafyrirtækja í samstarfinu að öðru leyti en að þeim sé heimilt að útvega fundaraðstöðu og ritara.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa heimildir fyrir því og rökstuddan grun um að þátttaka Samtaka fjármálafyrirtækja hafi í reynd orðið talsvert meiri en skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir veitingu undanþágunnar kveða á um. Er sá grunur meðal annars studdur af ummælum sem fallið hafa í viðtölum fjölmiðla við forstjóra Fjármálaeftirlitsins, Umboðsmanns skuldara, auk upplýsinga sem fram koma í fréttatilkynningum frá embættinu og Samtökum Fjármálafyrirtækja.

Af þessum sökum hafa Hagsmunasamtök heimilanna óskað eftir því við Samkeppniseftirlitið að hafin verði rannsókn á aðkomu SFF að samráði fjármálafyrirtækja, Umboðsmanns skuldara o.fl. í kjölfar dóms Hæstaréttar þann 15. febrúar síðastliðinn, með hliðsjón af því hvort farið hafi verið á svig við skilyrði fyrir ákvörðun eftirlitsins um veitingu undanþágu til samstarfsins.

Tilvísanir:

Samkeppniseftirlitið 9.3.2012 - Ákvörðun nr. 4/2012 um veitingu undanþágu vegna samstarfs í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2011:

RÚV 3.6.2012 - Viðtal við Umboðsmann skuldara

Bylgjan 5.7.2012 - Viðtal við forstjóra FME (3:45)

Samhljóða og samtíma fréttatilkynningar UMS og SFF um stöðu mála í samráðinu:
http://www.ums.is/fraedsla-og-frettir/nr/354
http://www.sff.is/frettir/frettir/nr/891

Umboðsmaður skuldara 16.8.2012, fréttatilkynning

Erindið til Samkeppniseftirlitsins má lesa í heild sinni hér


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum