Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Hafa samband

heimilin@heimilin.is

Á döfinni

Fundir um verðtryggingu: Rvk, Akureyri og Húsavík

Hagsmunasamtök heimilanna vilja vekja athygli á opnum fundum um verðtrygginu, kröfur HH og afkomu lífeyrissjóðanna sem fara fram á næstu dögum.

Á hádeigsfundi á miðvikudag verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð. Eftirtaldir aðilar munu fjalla um verðtrygginguna og svara spurningum fundargesta:



Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Óskar Hafnfjörð Auðunsson, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ
Andrea J. Ólafsdóttir, Hagsmunasamtökum heimilanna
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR

Fundurinn er öllum opinn og fer fram eins og áður sagði miðvikudaginn 23. nóvember kl. 12:00 – 13:20 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89.

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Miðvikudagskvöldið 23. nóvember verður fundur á Akureyri og á fimmtudagskvöldið á Húsavík;

„Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti“

Akureyri: Miðvikudag 23. nóv. kl 19:30 í Deiglunni

umræðufundur um kröfur Hagsmunasamtaka Heimilanna, stöðu lífeyrissjóða og afnám verðtryggingar
- í panel verða:
Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsunasamtaka Heimilanna
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnanaður í VR og áhugamaður um lífeyrissjóði
Aðalsteinn Á. Balsdursson, formaður Framsýn og Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar


Húsavík: Fimmtudag 24. nóv. kl. 20:00 - 22:00
Þekkingarmiðstöðin býður ókeypis aðgang á fundinn þar sem Andreu Ólafsdóttur og Ragnari Þór Ingólfssyni hefur verið boðið að tala tæpitungulaust um kröfur HH og afkomu lífeyrissjóðanna og lausnir til framtíðar. Fundurinn verður á Fosshótel í Moby Dick salnum


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum