Á döfinni

Aðalfundur 2020

Aðalfundur 2020

Kæru félagsmenn,

Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, þriðjudagskvöldið 25. febrúar 2020 kl. 20:00, í húsnæði Hjálpræðishersins að Álfabakka 12 í Mjóddinni (gengið inn að sunnanverðu).

 

Dagskrá:

  1. Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður
  3. Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
  4. Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
  5. Tillögur um breytingar á samþykktum
  6. Kosning 7 aðalmanna í stjórn
  7. Kosning 3-7 varamanna í stjórn
  8. Kosning skoðunarmanna
  9. Önnur mál

Eftirfarandi tillaga um breytingu á samþykktum verður til umfjöllunar á fundinum.

  • Núverandi 2. mgr. 9. gr. svohljóðandi:
    • Stjórnarstörf eru ólaunuð, svo og þau verkefni sem stjórnarmenn taka að sér fyrir samtökin. Þó er heimilt að greiða fyrir útlagðan kostnað sem til fellur vegna rekstrar samtakanna.
  • Orðist svo:
    • Stjórnarstörf eru ólaunuð, en heimilt er að greiða fyrir útlagðan kostnað vegna rekstrar samtakanna. Þrátt fyrir það getur stjórnarmaður gefið kost á sér til annarra verkefna en stjórnarstarfa sem stjórn ákveður að kaupa að þjónustu til gegn eðlilegu endurgjaldi hafi atkvæði hans ekki ráðið úrslitum um þá ákvörðun og skal hann þá jafnframt víkja sæti við frekari ákvarðanir stjórnar um verkefnið.

Kosningu til stjórnar verður hagað þannig að í hvorri umferð má hver atkvæðisbær fundarmaður greiða allt að sjö frambjóðendum atkvæði og ræður hreint atkvæðamagn úrslitum. Þurfi að skera úr um röð ef tveir eða fleiri hljóta jafn mörg atkvæði verður dregið um innbyrðis röð þeirra.

Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 18. febrúar kl. 20:00. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Einnig er óskað eftir tilnefningum skoðunarmanna og sjálfboðaliðum í talningu atkvæða á fundinum.

Fundargögn verða birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundarins.

 

Bestu kveðjur,
Hagsmunasamtök heimilanna


© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum