Neytendastofa hefur rannsókn á svokölluðu “vaxtagreiðsluþaki” Íslandsbanka
Neytendastofa hefur að beiðni Hagsmunasamtaka heimilanna hafið rannsókn á viðskiptaháttum Íslandsbanka við markaðssetningu á svokölluðu “vaxtagreiðsluþaki”.

Neytendastofa hefur að beiðni Hagsmunasamtaka heimilanna hafið rannsókn á viðskiptaháttum Íslandsbanka við markaðssetningu á svokölluðu “vaxtagreiðsluþaki”.

Í gær fór fram aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli HH og talsmanns neytenda (TN) gegn Landsbankanum. Þann 1. júní hafnaði Sýslumaðurinn í Reykjavík kröfu HH og TN um að sett yrði lögbann á útsendingu greiðsluseðla vegna ólögmætra gengistryggðra lána. Þessa ákvörðun sýslumanns kærðu stefnendur til Héraðsdóms Reykjavíkur.
Eins og kunnugt er ríkir mikil óvissa um endurútreikninga áður gengistryggðra lána eftir hæstaréttardóm í máli 600/2011 frá 15. febrúar síðastliðnum þar sem afturvirkir vaxtaútreikningar voru dæmdir ólögmætir. Bankarnir hafa hins vegar haldið áfram að senda út greiðsluseðla eins og ekkert hafi í skorist.
Dagsetning er ekki enn komin fyrir dómsuppkvaðningu, en búast má við niðurstöðu innan fárra vikna.

Full ástæða til rannsóknar Samkeppniseftirlitsins
Fljótlega eftir að samráð fjármálafyrirtækja hófst varðandi flýtimeðferð úrskurðar um gengistryggðra lánasamninga vöknuðu grunsemdir hjá stjórnarmönnum Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) um að hagsmunir lántaka yrðu fyrir borð bornir í þessu samráði. HH lagði fram athugasemd til Samkeppniseftirlitsins (SE) um að slíkt samráð þyrfti að vera innan skýrra marka. Samkeppniseftirlitið var á sama máli og veitti undanþágu gegn ströngum skilyrðum. Eitt af skilyrðum SE var að Samtök Fjármálafyrirtækja (SFF) kæmu ekki að samráðinu nema í mesta lagi með því að veita fundaraðstöðu og ritara. Þetta var skýrt tilgreint af hendi SE og að opinber fulltrúi skuldara þ.e. Umboðsmaður skuldara væri einnig beinn aðili að samkomulaginu og Talsmaður Neytenda hefði valkvæða aðkomu.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa beint erindum til Neytendastofu, Fjármálaeftirlitsins, Talsmanns neytenda og Umboðsmanns skuldara þar sem vakin er athygli á og farið fram á rannsókn á viðskiptaháttum Íslandsbanka við markaðssetningu á lánveitingum og þjónustu þeim tengdum sem gengur undir markaðsheitinu “vaxtagreiðsluþak óverðtryggðra húsnæðislána”.

HH hafa beint formlegu erindi til Samkeppniseftirlitsins með ósk um að hafin verði rannsókn á aðkomu Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) að samstarfi fjármálafyrirtækja og opinberra aðila í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2011 um fullnaðargildi kvittana o.fl.

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) hafa sent kæru til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Umboðsmanns skuldara (UMS) á beiðni HH um aðgang að gögnum um samráð fjármálafyrirækja og UMS, ásamt Neytendastofu og Talsmanni neytenda, sem stofnað var til í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2012 um gengistryggð lán.

Ekki taka verðtryggð lán ef þér er annt um fjárhagslega framtíð þína
Verðtryggingin er að mati stjórnar HH mikil ógn við fjárhagslega heilsu yfir 50% heimila í landinu. Reyndar er svo nú að allt að 20% heimila eru gjaldþrota eða hafa ígildi þeirra stöðu (greiðsluaðlögun). Önnur 20% til 30% heimila eru í hættu þar eð lítið má út af bera í fjármálum til að valda kollsteypu niður í fjárhagslegt kviksyndi. Til að vera sanngjarn að þá er ekki hægt að kenna verðtryggingu um öll málin með beinum hætti en hinar óbeinu afleiðingar verðtryggingar eru mjög afgerandi í íslensku hagkerfi þó ekki sé minnst á bein og mjög augljós neikvæð áhrif.

Núverandi formaður stjórnar, Ólafur Garðarsson afhendir fyrrum formanni, Andreu J. Ólafsdóttur blómvönd frá stjórninni með þökkum fyrir gott starf á liðnu ári. Vegna anna Andreu við framboð til forseta varð þessi látlausa athöfn að bíða en aðalfundur samtakanna var 30. maí.

Órökstuddur úrskurður sýslumannsins í Reykjavík fyrir tveimur vikum um að hafna lögbanni við greiðsluseðlum vegna gengistryggðra lána hefur verið borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Hagsmunasamtök heimilanna (HH) og talsmaður neytenda (TN) hafa ákveðið að una ekki úrskurði Sýslumannsins í Reykjavík frá 1. júní síðastliðnum þar sem synjað var lögbannskröfu gerðarbeiðenda gegn Landsbankanum - en yrði væntanlega fordæmisgefandi fyrir aðrar lánastofnanir. HH og TN fóru fram á að stöðvuð yrði öll innheimta greiðsluseðla ólögmætra áður gengistryggðra lána, vegna mikillar óvissu sem uppi er varðandi lánin og endurútreikninga þeirra, einkum eftir dóm Hæstaréttar (nr. 600/2011) frá 15. febrúar síðastliðnum þar sem vaxtaútreikningar gengistryggðra lána aftur í tímann voru dæmdir ólögmætir.
Í úrskurði sýslumanns er ekki að finna neinn efnislegan rökstuðning fyrir synjun lögbannsbeiðninnnar og því telja gerðarbeiðendur fulla ástæðu til að fara með ákvörðunina fyrir hérðasdóm. Greinargerð lögmanns, þar sem synjun sýslumanns er kærð, hefur verið send héraðsdómara.

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur synjað lögbannskröfu Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda gegn Landsbankanum. Í lögbannskröfunni var farið fram á að stöðvuð yrði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána, vegna þeirrar miklu óvissu sem uppi er varðandi lánin sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæt, og endurútreikninga þeirra.
Í úrskurði sýslumanns er ekki að finna neinn efnislegan rökstuðning fyrir synjun. Sýslumaður hafnar hins vegar röksemdafærslu Landsbankans fyrir því að gerðarbeiðendur skorti heimild til að leggja fram lögbannið á grundvelli laga nr. 141/2001 um lögbann og dómsmál til verndar heildarhagsmunum neytenda. Samkvæmt úrskurði sýslumanns hafa gerðarbeiðendur því fullt umboð til að leita lögbanns af þessu tagi til verndar hagsmunum neytenda.
Ný stjórn HH sem kosin var á aðalfundi samtakanna í síðustu viku, ásamt talsmanni neytenda, mun taka ákvörðun um framhald málsins, þ.e er hvort ákvörðun sýslumanns verði send áfram til úrskurðar hjá héraðsdómara.

Í gær var kosin ný stjórn HH á aðalfundi samtakanna. Andrea J. Ólafsdóttir lét af störfum, eftir árangursríkt og farsælt ár sem formaður. Nokkrir stjórnarmenn úr síðustu stjórn buðu fram krafta sína áfram, og nokkrir nýjir bættust í hópinn. Stjórn samtakanna skipa 7 aðalmenn og 7 varamenn sem kosnir eru á aðalfundi, en stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum. Nýja stjórn HH skipa eftirfarandi.

Á miðvikudag var tekin fyrir hjá Sýslumanninum í Reykjavík lögbannskrafa Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og Talsmanns neytenda (TN) gegn Landsbankanum, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Mikil óvissa er uppi varðandi lánin sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæt og krefjast gerðarbeiðendur þess að lögbanni verði ekki aflétt fyrr en nýir og lögmætir endurútreikningar verða sendir út.
HH og TN vildu ekki una úrskurði sýslumanns frá 27. apríl síðastliðnum þar sem lögbannskröfu þessa efnis var hafnað á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð. Því var lögð fram ný krafa sama efnis þar sem skýrt er við hvaða gengistryggðu lán er átt og lýst þeim ótvíræðu afleiðingum sem innheimta greiðsluseðla ólögmætra gengistryggðra lána hefur fyrir neytendur.
Sýslumaður óskaði eftir fresti til að kynna sér málsgögn og taka afstöðu til þeirra. Úrskurður verður kveðinn upp í málinu þann 1. júní næstkomandi.

Wir bieten unseren Kunden mit nützlichen Informationen und Ratschläge, die sie benötigen, fundierte Entscheidungen zu treffen, ihre Ziele zu erreichen. Ob es sich um die Verwaltung von Kundeninvestitionen oder einen umfassenden Plan für sie zu schaffen und ihre Familie sind unsere zertifizierten Planern gewidmet mit einem außergewöhnlichen Service zu bieten.
Deshalb, im Laufe der Jahre konnten wir einen Ruf als einer der besten unabhängigen Beratern zu bauen. Wir verstehen die Bedeutung der Kunden auf dem richtigen Weg zum Erfolg bringen, und wir sind bereit, mit ihnen der Planung in allen Bereichen zu arbeiten.
These Website Standard Terms and Conditions written on this webpage shall manage your use of this website. These Terms will be applied fully and affect to your use of this Website. By using this Website, you agreed to accept all terms and conditions written in here. You must not use this Website if you disagree with any of these Website Standard Terms and Conditions.
Minors or people below 18 years old are not allowed to use this Website.
Other than the content you own, under these Terms, Buckle LLC and/or its licensors own all the intellectual property rights and materials contained in this Website.
You are granted limited license only for purposes of viewing the material contained on this Website.
You are specifically restricted from all of the following
Certain areas of this Website are restricted from being access by you and Buckle LLC may further restrict access by you to any areas of this Website, at any time, in absolute discretion. Any user ID and password you may have for this Website are confidential and you must maintain confidentiality as well.
In these Website Standard Terms and Conditions, “Your Content” shall mean any audio, video text, images or other material you choose to display on this Website. By displaying Your Content, you grant Buckle LLC a non-exclusive, worldwide irrevocable, sub licensable license to use, reproduce, adapt, publish, translate and distribute it in any and all media.
Your Content must be your own and must not be invading any third-party’s rights. Buckle LLC reserves the right to remove any of Your Content from this Website at any time without notice.
This Website is provided “as is,” with all faults, and Buckle LLC express no representations or warranties, of any kind related to this Website or the materials contained on this Website. Also, nothing contained on this Website shall be interpreted as advising you.
In no event shall Buckle LLC, nor any of its officers, directors and employees, shall be held liable for anything arising out of or in any way connected with your use of this website whether such liability is under contract. Buckle LLC, including its officers, directors and employees shall not be held liable for any indirect, consequential or special liability arising out of or in any way related to your use of this Website.
You hereby indemnify to the fullest extent Buckle LLC from and against any and/or all liabilities, costs, demands, causes of action, damages and expenses arising in any way related to your breach of any of the provisions of these Terms.
If any provision of these Terms is found to be invalid under any applicable law, such provisions shall be deleted without affecting the remaining provisions herein.
Buckle LLC is permitted to revise these Terms at any time as it sees fit, and by using this Website you are expected to review these Terms on a regular basis.
The Buckle LLC is allowed to assign, transfer, and subcontract its rights and/or obligations under these Terms without any notification. However, you are not allowed to assign, transfer, or subcontract any of your rights and/or obligations under these Terms.
These Terms constitute the entire agreement between Buckle LLC and you in relation to your use of this Website, and supersede all prior agreements and understandings.
These Terms will be governed by and interpreted in accordance with the laws of the State of New York, and you submit to the non-exclusive jurisdiction of the state and federal courts located in New York for the resolution of any disputes.