Sala Íslandsbanka - Fjármálaeftirlit
Íslenska ríkið eignaðist Íslandsbanka 2015 og sumarið 2021 fór fram almennt útboð á hlutabréfum ríkisins í bankanum. Í marsmánuði 2022 var hlutur ríkisins aftur til sölu en með tilboðsfyrirkomulagi ætluðu hæfum fjárfestum, í lokuðu útboði í umsjón Bankasýslu ríkisins. Seinna söluferli Íslandsbanka hefur verið harðlega gagnrýnt. Fjölmargir Alþingismenn kröfðust þess að rannsóknarnefnd yrði skipuð til að fara yfir ferlið. Ríkisstjórnin hafnaði því en fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Jafnframt réðst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) í athugun á háttsemi söluaðilanna. Samkvæmt tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar 9. janúar 2023 kemur fram í frummati FME að bankinn kunni að hafa brotið gegn nánar tilgreindum ákvæðum laga og reglna við framkvæmd sölunnar.
Formaður stjórnar og alþingiskonan Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur gagnrýnt seinna söluferli bankans harðlega, bæði á Alþingi og á opinberum vettvangi. Í nýlegri grein fjallar Ásthildur Lóa um undirlægjuhátt yfirvalda í garð fjármálafyrirtækja í aðsendri grein í Heimildinni. Hún heitir: Að brjóta lög í sátt við yfirvöld. Hér er grein formanns Hagsmunasamtaka heimilanna:
Að brjóta lög í sátt við yfirvöld
Íslandsbanki er nú í einhverskonar sáttameðferð hjá Fjármálaeftirlitinu. Enn hefur hvorki verið upplýst um eðli eða alvarleika brota Íslandsbanka, en sagan sýnir að lögbrot fjármálafyrirtækja lúta allt öðrum lögmálum en lögbrot allra annarra og að refsingar, jafnvel fyrir stórfelld brot, hafa verið fáránlega vægar eða jafnvel engar.
Fórnarlömbunum refsað fyrir lögbrot
Á árunum fyrir hrun buðu bankar og önnur fjármálafyrirtæki upp á ólögleg lán. Fjölmargir létu blekkjast og gengu í gildruna. Stjórnendur bankanna og „kerfið“ vissu alveg að gengistryggð lán voru ólögleg. Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn, ríkisstjórnin og aðrir innan stjórnkerfisins létu þau engu að síður afskiptalaus og gerðu engar athugasemdir við veitingu þeirra svo árum skipti.