Hagsmunasamtök heimilanna hafa að undanförnu ítrekað óskað eftir upplýsingum varðandi samræmdar verklagsreglur um greiðsluaðlögun einstaklinga, og reglugerð þar um, en engin svör fengið.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa að undanförnu ítrekað óskað eftir upplýsingum varðandi samræmdar verklagsreglur um greiðsluaðlögun einstaklinga, og reglugerð þar um, en engin svör fengið.

Hópurinn "Slagur við Dróma" boðar til opins fundar um málefni Dróma í sal Stýrimannaskólans, fimmtudaginn 17. janúar kl. 20:00. "Viðskiptavinir" Dróma eru hvattir til að sýna samtöðu og mæta!

Hagsmunasamtök heimilanna eru 4 ára í dag. Þau voru stofnuð formlega 15. janúar 2009 á um 100 manna fundi í Háskólanum í Reykjavík. Stjórn óskar öllum til hamingju með daginn.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) hefur móttekið og yfirfarið fundargerðir og önnur gögn samráðshóps vegna gengislánadóms Hæstaréttar nr. 600/2011, sem umboðsmaður skuldara (UMS) afhenti samtökunum í síðustu viku. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að synjun UMS á beiðni HH um aðgang að gögnunum hafi verið óheimil, og að tafarlaust skyldi veita aðgang að þeim eins og hefur nú verið gert.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur kveðið upp úrskurð í kærumáli Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) gegn umboðsmanni skuldara á þann veg að embættinu beri að afhenda samtökunum fundargerðir og önnur gögn samráðshóps fjármálafyrirtækjanna og Dróma hf. vegna gengislánadóms Hæstaréttar (nr. 600/2012). Meðal álitaefna sem reyndi á við meðferð málsins var bankaleynd samkvæmt þagnarskylduákvæðum laga um fjármálafyrirtæki, ákvæði upplýsingalaga um viðskiptahagsmuni, og lögboðið hlutverk embættis umboðsmanns skuldara.

Hagsmunasamtök heimilanna óska félagsmönnum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Hópurinn Slagur við Dróma heldur annan samtöðufund sinn í dag, miðvikudaginn 5. des. kl. 17:00 að Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði. (2. hæð).
Fundurinn er sjálfstætt framhald fundarins 15. nóv. og eru "viðskiptavinir" Dróma hvattir til að fjölmenna.
Á fundinum verður lagt fram erindi til innanríkisráðherra, auk þess sem ræddar verða hugmyndir og aðgerðir hópsins í leit að réttlæti og jafnræði.

Í gær var lögð fram fyrir hönd HH lögbannskrafa hjá sýslumanninum í Reykjavík þar sem þess er krafist að innheimta Lýsingar hf. vegna ólögmætra gengistryggðra lána til tækja- og bílakaupa verði stöðvuð.

kjölfar borgarafundar HH undir yfirskriftinni “Verðtryggingin dregin fyrir dóm” og auglýsinga í aðdraganda hans hafa komið fram spurningar varðandi kostnað sem stjórn HH þykir eðlilegt að svara.
Auglýsingakostnaður sem greiddur var af HH í tengslum við fundinn var samtals kr. 626.428,-. Öll vinna svo og annar kostnaður við auglýsingar var greiddur af einstaklingum og fyrirtækjum er láta sig málefnið varða. Vegur þar þyngst framlag eigenda og starfsfólks auglýsingastofunnar PIPAR sem áttu frumkvæði að og sameinuðust um að styrkja þetta verkefni, þar eð meirihluti þeirra eru lánþegar með verðtryggð fasteignalán. Eigendum og starfsmönnum PIPAR eins og mörgum öðrum, ofbýður óréttlætið tengt lánakjörum neytenda.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

"Viðskiptavinir" Dróma eru hvattir til að mæta fyrir framan fyrirtækið að Lágmúla 6, á morgun, föstudaginn 23. nóvember kl. 13:00 og sýna þannig samtöðu lántaka.
Það er Facebook-hópurinn "Slagur við Dróma" sem stendur fyrir þessum viðburði, hópur fólks sem á einn eða annan hátt þarf að standa í ömurlegri baráttu við slitastjórn SPRON og Frjálsa Fjárfestingabankann. Þau krefjast réttlátrar meðferðar og þess að fá sömu meðferð og þeir sem voru í viðskiptum við aðrar bankastofnanir fyrir hrun. Munið að samstaða og samheldni skilar árangri sem hvert og eitt okkar getur aldrei náð fram hvert í sínu horni!

Upptökur frá Borgarafundi Hagsmunasamtaka heimilanna þann 13. nóvember síðastliðinn verða birtar á morgun fimmtudaginn 22. nóvember á vefsíðunni www.hjariveraldar.is.
Samtökin vilja þakka Hjara Veraldar fyrir frábært starf við upptöku og miðlun á þessum sögulega fundi, og öðrum samskonar viðburðum undanfarin misseri. Hér er um að ræða hugsjónastarf sem verðskuldar mun meiri viðurkenningu en það hefur í raun hlotið.
Félagsmenn og aðrir áhugasamir sem ekki gátu sótt fundinn geta nú fengið að njóta þess að horfa á vandaða upptöku af fundinum með skýru hljóði.

Ólafur Garðarsson formaður HH afhenti Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta Alþingis ályktun borgarafundar HH fyrir framan alþingishúsið síðastliðinn föstudag. Ályktunin er svohljóðandi "Almennur fundur í Háskólabíó 13. nóvember 2012 krefst þess að Alþingi tryggi tafarlaust afnám verðtryggingar á lánsfé og að gildandi lög um neytendavernd séu virt".

Stjórn HH hafði við afhendinguna meðferðis strákúst sem er orðin að táknmynd fyrir baráttu samtakanna gegn verðtryggingunni og málaferlin gegn Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns, sem nú standa yfir. Stefnendur í málinu stilltu sér einmitt upp með sams konar kúst á myndinni sem fylgdi viðtali því er birtist í Fréttatímanum fyrir helgi, og lögðu þarmeð grunninn að strákústinum sem táknmynd. Þeir fjölmörgu sem sóttur borgarafundinn í Háskólabíó síðastliðinn miðvikudag, svo og allir þeir sem styðja baráttuna gegn verðtryggingunni eru hvattir til að stilla upp strákústinum fyrir framan heimili sín og sýna þannig samstöðu í verki.

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.
Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202
Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.