HH og talsmaður neytenda hafa lagt fram lögbannsbeiðni til Sýslumannsins í Reykjavík þar sem farið er fram á lögbann við því að Landsbankinn sendi út og innheimti greiðsluseðla vegna áður gengistryggðra lána.

HH og talsmaður neytenda hafa lagt fram lögbannsbeiðni til Sýslumannsins í Reykjavík þar sem farið er fram á lögbann við því að Landsbankinn sendi út og innheimti greiðsluseðla vegna áður gengistryggðra lána.

Í gær tók sýslumaðurinn í Reykjavík fyrir fyrstu lögbannsbeiðni sinnar tegundar, á grundvelli laga nr. 141/2001 til verndar heildarhagsmunum neytenda. Var það beiðni Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) og talsmanns neytenda (TN) um að lagt yrði lögbann vegna vörslusviptinga án atbeina handhafa opinbers valds, þ.e. án heimildar dómara eða sýslumanns. Sýslumaður gerði kröfu um tryggingu að fjárhæð 3.000.000 kr. og féll ekki frá henni þrátt fyrir rökstudd mótmæli HH og TN í þá veru að trygging ætti ekki við í slíkum málum auk þess sem beiðnin lyti aðeins að því að farið væri að lögum. Sýslumaður hefur heimild til þess að víkja frá tryggingarkröfu ef réttmæti lögbanns er "tvímælalaust í ljósi atvika." Neitaði hann að rökstyðja afstöðu sína í því efni.

Undirskriftasöfnun vegna verðtryggðra lána hefur verið lokað. 37743 undirskriftir söfnuðust.

Úrskurður Evrópudómstólsins frá því í síðustu viku í slóvensku máli kann að hafa fordæmisgildi fyrir uppgjör gengislána hér á landi, neytendum í hag. Evróputilskipun sú sem dómurinn byggir á, þ.e. 93/13/EEB um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum, hefur verið innleidd í íslensk lög.

Í desember 2011 barst svar frá ESA vegna kvörtunar Hagsmunasamtaka heimilanna, Samtaka lánþega og hóps einstaklinga sem gerðust beinir aðilar að kvörtuninni. Í stuttu máli var svarið á þá lund að ESA tæki ekki afstöðu og vísaði málinu frá. Kvörtunaraðilum var gefinn um mánuður til að gera athugasemdir sem var og gert. Endanlegur úrskurður ESA barst okkur um 7. mars eða svo og er hann á sama veg og áður. ESA var ekki haggað til að taka efnislega afstöðu til kvörtunarinnar og taldi umkvörtunaratriðin ekki falla undir umsýslusvið stofnunarinnar.

Hagsmunasamtök heimilanna stóðu fyrir viðhorfskönnun meðal félagsmanna í byrjun mars. Margt er athyglisvert í niðurstöðunum en í þeim kemur einnig fram samanburður milli ára á nokkrum þáttum (sambærilegar kannanir voru gerðar 2009 og 2010). Aðeins þeir félagsmenn sem höfðu merkt við að þeir svari könnunum samtakanna fengu þátttöku hlekk í tölvupósti. Svarhlutfall var 32% eða 2450 af 7563.

Tilkynning til framteljanda sem hafa tapað endurkröfu vegna lánsveðs eða annara ábyrgða
Hagsmunasamtök heimilanna vilja vekja athygli framteljenda sem veitt hafa þriðju aðilum lánsveð á því, að hafi slík veðsetning leitt til taps vegna greiðsluþrots skuldarans er líklegt að veðsali eigi rétt á lækkun tekjuskattstofns og þar með afslætti af tekjuskatti.
Stofnaður hefur verið sérstakur reikningur í nafni Hagsmunasamtaka heimilanna til að fara í málarekstur til að fá úr því skorið hvort verðbindandi ákvæði í neytendalánum standist lög. Lagateymi HH hefur verið að hittast að undanförnu til að ræða áætlun um málsókn og hafa fundist þó nokkrar gapandi holur í lagagrunni verðtryggingar. Komin er gróf mynd á áætlunina og mun hún skerpast enn frekar á næstu vikum.

Neytendur og lántakendur unnu áfangasigur með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2012 um undanþágubeiðni Samtaka Fjármálafyrirtækja vegna fyrirhugaðs samráðs um viðbrögð við dómi hæstaréttar í máli 600/2011 þar sem afturvirk endurákvörðun og innheimta seðlabankavaxta af áður gengistryggðu láni var dæmd ólögmæt. Í innsendum umsögnum Hagsmunasamtaka heimilanna vegna málsins var mælt gegn því að beiðnin yrði samþykkt og gerð athugasemd við að ekki væri gert ráð fyrir þeim aðilum og stofnunum sem eiga að gæta hagsmuna neytenda.

Félagsfundur HH sem haldinn var síðastliðinn laugardag samþykkti eftirfarandi ályktun:
,,Félagsfundur Hagsmunasamtaka heimilanna, haldinn í Tækniskólanum þann 10. mars 2012, samþykkir að beina því til stjórnar HH að undirbúa umsókn samtakanna að nýju landsambandi félagasamtaka sem hafi það markmið að samþætta launa- og lánakjarabaráttu. Umsóknin verði lögð fyrir á næsta aðalfundi HH."
Óformlegar viðræður eru nú þegar hafnar við verkalýðsfélög um nýja landssambandið. Á félagsfundinum voru kynntar helstu niðurstöðu könnunar sem send var öllum félagsmönnum HH, en þar kemur fram að 61% félagsmanna eru fylgjandi þessu skrefi.
Á fundinum var einnig ákveðið að Hagsmunasamtök heimilanna láti vinna lögfræðiálit vegna dóms Hæstaréttar nr. 600/2011 þar sem afturvirkir vextir endurútreikninga á áður gengisbundnu láni voru dæmdir ólögmætir.

Vegna þeirrar opinberu umræðu sem skapast hefur um líkamsárásir á starfsmenn fjármála- og innheimtufyrirtækja vill stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna koma því á framfæri að samtökin fordæma ofbeldi í öllum birtingarmyndum þess og hafa alltaf gert Samtökin hafa alla tíð starfað með friðsamlegum og málefnalegum hætti, hvatt til samstöðu án ofbeldis og aldrei í neinum tilvikum réttlætt ofbeldi af neinu tagi.
Frá því að Hæstiréttur kvað upp dóm í máli nr. 600/2011 þann 15. febrúar síðast liðinn þar sem endurútreikningar áður gengistryggðra lána voru dæmdir ólöglegir hafa fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna setið tvo fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og einnig farið á fund innanríkisráðherra þar sem Hæstaréttardómurinn og áhrif hans hafa verið rædd.

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.
Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202
Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.