Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Viðhorfskönnun hjá félagsmönnum HH

Hagsmunasamtök heimilanna stóðu fyrir viðhorfskönnun meðal félagsmanna í byrjun mars. Margt er athyglisvert í niðurstöðunum en í þeim kemur einnig fram samanburður milli ára á nokkrum þáttum (sambærilegar kannanir voru gerðar 2009 og 2010). Aðeins þeir félagsmenn sem höfðu merkt við að þeir svari könnunum samtakanna fengu þátttöku hlekk í tölvupósti. Svarhlutfall var 32% eða 2450 af 7563.

Smella hér til að sækja niðurstöður könnunar.

 

Athygli vekur að vegið atvinnuleysi hefur lækkað innan hópsins og er nú nær því sem opinberar tölur benda til. Þetta kann að skýrast af því að félagsmenn endurspegla nú betur almenna stöðu landsmanna en almenn könnun samtakanna (Gallup) 2009 benti reyndar til sterkrar samsvörunar á milli almennings og félagsmanna þ.e. lítill munur væri almennt á milli að undanskyldu þessu með atvinnuleysið.

Hið ánægjulega við niðurstöðurnar fyrir stjórn HH er að ánægðum með störf stjórnar hefur fjölgað enn frekar og dregið hefur úr hlutfalli óánægðra.

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.