Á döfinni
Frambjóðendur til stjórnar 2012 - Sigrún Viðarsdóttir
Article Index

Sigrún Viðarsdóttir
Ágætu félagsmenn.
Ég, Sigrún Viðarsdóttir býð mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í Hagsmunasamtökum heimilanna. Ég er á góðum aldri, einstæð móðir, menntaður sjúkraliði og lyfjatæknir, með mikinn áhuga á félagasstörfum og að láta gott af mér leiða.
Ég sat í varastjórn Hagsmunasamtaka heimilinna árið 2011 en fór fljótlega í stjórn sem meðstjórnandi árið 2011-2012. Sem eitt stærsta kjaramál heimilinna þá tel ég gríðarlega mikilvægt að halda áfram réttlætisbaráttunni fyrir leiðréttingum á stökkbreyttum gengis- og verðtryggðum lánum, bættri réttarstöðu neytenda og nýju lánakerfi að norrænni* fyrirmynd. (*óverðtryggð fasteignalán með 2-4% vöxtum) Ásamt því að sitja vikulega fundi HH þá starfaði ég með virkum hætti að undirskriftasöfnun HH, þ.e. sá um að “smala” saman sjálfboðaliðum þar sem 38 þúsund undirskriftir söfnuðust á 6 mánuðum vegna kröfu íslendinga um afnám verðtryggingar og leiðréttingu á lánum heimilinna. Forseti Íslands hefur nú þegar veitt áðurnefndum undirskriftum viðtöku.
Býð ég þvi krafta mina áfram til stjórnarstarfa fyrir árið 2012-2013. Þess má einnig geta að ég hef verið skipuð í trúnaðarráð VR 2012-2014 sem einnig er sjálfboðavinna en hlutverk þess er að vera stjórn félagsins ráðgefandi við gerð kjarasamninga og ýmis stærri mál. Er ekki tengd neinum stjórnmálaflokki né á ég hagsmuna að gæta í stjórnum banka eða fjármálafyrirtækja. Ég fer þess á leit við félagsmenn HH að þeir styðji mig til áframhaldandi stjórnarsetu, með atkvæði sínu á aðalfundi samtakanna fimmtudagskvöldið 31. maí næstkomandi.