Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2025 var haldinn 20. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:
- Guðmundur Ásgeirsson formaður
- Sigríður Örlygsdóttir varaformaður
- Guðrún Bryndís Harðardóttir gjaldkeri
- Jónas Yngvi Ásgrímsson ritari
- Guðrún Hulda Ólafsdóttir meðstjórnandi
Varamenn:
- Hafþór Ólafsson
- Úlfhildur Elín Guðmundsdóttir
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir
- Ragnar Unnarsson
Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld 2025 verði óbreytt frá fyrra ári 5.900 kr.
Baldur Garðarsson og Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir voru kjörin skoðunarmenn reikninga.
Stjórnin hefur samþykkt stefnuskrá óbreytta frá fyrra ári sem er svohljóðandi:
- Að réttur allra til heimilis sé virtur sem grundvallarmannréttindi, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins.
- Að verðtrygging lána til neytenda verði afnumin enda hækkar hún lán, leigu, vaxtastig, vöruverð og framfærslukostnað allra heimila.
- Að tryggt verði að heimilin geti treyst því að forsendur greiðslumats standist þannig að greiðslubyrði húsnæðislána hækki ekki umfram greiðslugetu þeirra.
- Að neytendum verði gert kleift að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán án þess að greiðslumat eða aðrar hindranir standi í vegi fyrir því.
- Að fundið verði út hvað kostar að lifa hófsömu mannsæmandi lífi og framfærsla verði tryggð til samræmis við það.
- Að gerð verði Rannsóknarskýrsla heimilanna um þær aðgerðir sem ráðist var í eftir bankaránið 2008 og afleiðingar þeirra fyrir heimilin.