Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna ályktar að fráfarandi ríkisstjórn hafi brugðist því hlutverki sínu að standa vörð um heimilin og verja þau fyrir íþyngjandi áhrifum verðbólgu og vaxtahækkana á greiðslubyrði húsnæðisskuldbindinga almennings. Skortur á framsýni í húsnæðismálum hefur leitt til framboðsskorts og stjórn efnahagsmála brugðist með þeim afleiðingum að sífellt molnar undan þeim sjálfsögðu mannréttindum allra að eiga kost á viðunandi húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Ítrekaðar áskoranir
Hagsmunasamtök heimilanna voru meðal þeirra fyrstu til að sjá blikur á lofti fyrir fjórum árum og hafa síðan þá beint ítrekuðum áskorunum til stjórnvalda um að ráðast í aðgerðir til þess að verja heimilin. Því miður hefur lítið verið tekið mark á þessum aðvörunum og afleiðingarnar blasa við. Nú þegar kosningar eru á næsta leyti hvetjum við því kjósendur til að ráðstafa atkvæðum sínum eins og þeim þykir þau nýtast best í þágu heimilanna. Við hvetjum landsmenn þó til að horfa til verka og gjörða og hvaða stjórnmálaflokkar hafa sýnt það með fyrri verkum að þeir starfa skilyrðislaust að hagsmunamálum heimilanna.
Nokkrar áskoranir og tilkynningar Hagsmunasamtaka heimilanna frá 2020-2024:
26.03.2020: Tryggjum heimilunum skjól undir öruggu þaki
15.09.2020: ÍTREKUN-Tryggjum heimilunum skjól undir öruggu þaki
19.05.2020: Eiga bankar að hagnast á Covid-19?
02.09.2021: Bankarnir skulda heimilunum lægri vexti
15.12.2021: Aðvörun til neytenda vegna vaxtabreytinga Íslandsbanka
09.05.2022: Tryggjum að enginn missi heimili sitt vegna verðbólgu og vaxtahækkana!
10.08.2022: Aðgerðir gegn verðbólgunni verri en verðbólgan sjálf
20.09.2022: Fátækragildra verðtryggðra lána
01.05.2023: Heimilin eiga að vera friðhelg
05.06.2024 Vaxtastuðningur dropi í hafið
28.06.2024 Við krefjumst tafarlausrar vaxtalækkunar
22.08.2024 Í stríði gegn heimilunum