Þjónustusamningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið
Fyrsta júní síðastliðinn undirritaði formaður Hagsmunasamtaka heimilanna þjónustusamning fyrir hönd samtakanna, við ráðuneyti menningar- og viðskipta um óháða ráðgjafaþjónustu og réttindagæslu á fjármálamarkaði. Samstarfið er tímamót í starfi samtaka sem hafa lengi talað opinberlega fyrir auknum réttindum og bættum kjörum lántakenda í viðskiptum sínum. Þá ekki síst í sambandi við bæði fjárhagslegar og félagslegar afleiðingar efnahagshrunsins. Það hefur lengi verið þörf á að styrkja stoðir neytendaréttar á fjármálamarkaði og óháð ráðgjafarþjónusta er ein birtingarmynd þess.
Réttindagæsla á fjármálamarkaði er mikið hagsmunamál og nauðsynlegt að landsmönnum sé gefinn kostur á óháðri ráðgjöf í fjárhagslegum skuldbindingum sínum, sem fer fram með fræðslu, stuðningi og með tilliti til verndar í löggjöfinni. Hagsmunir lántakenda, rétturinn til heimilis og sanngjarnra viðskiptahátta verða ávallt í forgangi í þeirri hagsmunagæslu.
Aðgangur að þjónustu Hagsmunasamtaka heimilanna er greiður, því félagsgjald samtakanna er valkvætt og er haldið eins lágu og nokkur kostur er. Fjárhagslegur stuðningur ráðuneytisins og fyrri styrkur frá félagsmálaráðuneytinu hefur gert samtökunum kleift að ráða til sín sérfræðing í fullt starf. Það sem áður var hlutastarf er nú orðið að fullu starfi. Samtökin munu áfram vinna að almannahag og lögfræðingur samtakanna mun áfram sinna lögfræðilegum álitamálum í sjálfboðaliðastarfi.
Samtökin þakka veitt brautargengi og binda vonir við að samstarfið við ráðherra neytendamála verði farsælt.
Hagsmunasamtök heimilanna
Veittu málstaðnum lið. Skráðu þig í samtökin - Hér