Frumvarp til laga á Alþingi
Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna hefur mælt fyrir frumvarpi um tímabundna frystingu á verðtryggingu lána og húsaleigu vegna stöðunnar í efnahagsmálum. Með frumvarpi þessu er lagt til að frysta í ár, hækkanir á verðtryggðum skuldbindingum heimilanna vegna húsnæðis, sem hafa farið ört hækkandi að undanförnu vegna verðbólgu sem má að stóru leyti rekja til áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpið var lagt fram 1. desember og mælt var fyrir því 18. janúar - 80/152 frumvarp til laga.
Strax við upphaf heimsfaraldursins vöruðu Hagsmunasamtök heimilanna við því að hann gæti haft í för með sér verulegar raskanir á efnahagslífinu með neikvæðum áhrifum á fjárhagslegt öryggi heimilanna og brýndu fyrir stjórnvöldum nauðsyn þess að grípa til fyrirbyggjandi varnaraðgerða. Síðan þá hefur það ákall verið margítrekað en af hálfu yfirvalda hefur því ekki verið svarað nema með fyrirheitum um að ef slík áhrif kæmu fram yrði brugðist við því. Nú hafa slík áhrif komið fram, því ársverðbólga hefur mælst 5% með tilheyrandi hækkun verðtryggðra skuldbindinga heimila.