Undir þinglok lagði þingkonan Inga Sæland fram breytingartillögu við frumvarp um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, sem var unnin í samvinnu við Hagsmunasamtök heimilanna.
Þessi hófsama tillaga snerist einfaldlega um að veita neytendum með verðtryggð húsnæðislán rétt til að breyta þeim í óverðtryggð lán, án íþyngjandi kostnaðar og án þess að þurfa nýtt greiðslumat og lánshæfismat, enda óþarft ef greiðslubyrðin hækkar ekki. Þetta hefði orðið mörgum heimilum til hagsbóta sem eru föst í gildru verðtryggðra lána, nú þegar verðbólgan er komin á flug.
Það hefði átt að vera auðvelt að fá tillöguna samþykkta þar sem hún samræmdist stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og stefnu margra flokka sem hafa sumir haft afnám verðtryggingar á stefnuskrám sínum árum saman. Jafnframt felur hún hvorki í sér boð né bann líkt og hefur helst verið gagnrýnt af ýmsum andstæðingum afnáms verðtryggingar sem segjast aðhyllast “valfrelsi neytenda”.
Þrátt fyrir stefnuskrár, fögur fyrirheit og loforð í tengslum við lífskjarasamninga um að taka markviss skref í átt til afnáms verðtryggingar, var tillagan felld með 27 atkvæðum gegn 8. Atkvæðin féllu alveg eftir flokkslínum og afstaða stjórnmálaflokka til að þess að veita neytendum valfrelsi um að afnema verðtryggingu húsnæðislána sinna liggur því fyrir eins skýr og hún getur orðið á þessu stigi.
Hagsmunasamtök heimilanna telja mikilvægt að nú í aðdraganda kosninga séu kjósendur vel upplýstir um afstöðu stjórnmálaflokkanna til afnáms verðtryggingar og valfrelsis neytenda á fjármálamarkaði ásamt afstöðu þeirra til þess að valfrelsi neytenda byggist á jafnræði en ekki mismunun eftir efnahag. Hér á eftir verður því gerð grein fyrir því hvernig hver flokkur um sig greiddi atkvæði um fyrrnefnda tillögu og hvernig sú afstaða kemur heim og saman við fyrri yfirlýsingar og verk þeirra.