Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

Svik á svik ofan

Svik á svik ofan

Alþingismenn á Íslandi halda áfram að svíkja þjóðina og verja hagsmuni fjármálakerfisins. Hvergi á Vesturlöndum, nema á Íslandi er verðtrygging á fasteignalánum eða öðrum neytendalánum heimilanna. Lán með svipaða eiginleika hafa víðast  hvar verið bönnuð vegna neytendaverndarsjónarmiða. Hér halda hins vegar alþingismenn belti og axlaböndum á fjármálakerfinu á kostnað almennings. Verðtrygging lána og húsaleigu bitnar verst á lág- og millitekjuhópum og er því fátækragildra.

 

Afstaða meirihluta þingsins

Skömmu fyrir þinglok gafst alþingismönnum kostur á því að samþykkja lagabreytingu sem gæfi lántakendum möguleika á að breyta lánum sínum í óverðtryggð lán án íþyngjandi kostnaðar og án þess að þurfa nýtt greiðslumat og lánshæfismat.  

Einungis tveir flokkar greiddu atkvæði með tillögunni: Flokkur fólksins og Píratar.

Aðrir flokkar opinberuðu afstöðu sína gagnvart verðtryggingunni.  

Kjósum stjórnmálamenn sem standa í lappirnar gagnvart fjármálakerfinu og taka hagsmuni heimilanna fram yfir hagsmuni fjármálafyrirtækja - ALLTAF.

 

 

 

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.