Umsögn
Hagsmunasamtök heimilanna sendu í gær umsögn um stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra inn í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögninni er fjallað efnislega um þær breytingar sem forsætisráðherra leggur til að verði gerðar á stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins.
Við hvetjum félagsmenn til þess að lesa umsögnina, en hún er þar meðal rúmlega tvöhundruð umsagna, flestra frá einstaklingum.
Breytingar á stjórnarskránni
Hagsmunasamtök heimilanna hafa hingað til ekki blandað sér í umræðuna um nýja stjórnaskrá. Að því sögðu hafa samtökin, eftir að hafa tekist á við stjórnkerfið og dómskerfið frá hruni og upplifað spillinguna innan þess frá fyrstu hendi, rekið sig illilega á vald embættismanna sem enginn virðist ráða við og bera enga ábyrgð gagnvart neinum, allra síst kjósendum.
Þessu þarf að breyta og þó það verði ekki gert í einu skrefi eða með þessari umsögn, þá er þetta útgangspunktur samtakanna gagnvart stjórnarskrárbreytingum. Barátta samtakanna hefur alltaf snúist um að það eigi að fara eftir stjórnarskránni og öðrum lögum. Á meðan það er ekki gert er lítill tilgangur með nýrri stjórnarskrá.
Samtökin benda á að hefðu lög og stjórnarskrárvarin réttindi einstaklinga verið virt í aðgerðum stjórnvalda eftir hrun, sem og af dómstólum, hefðu þúsundir fjölskyldna ekki þurft að missa heimili sín. Að stjórnarskrárvarin mannréttindi hafi verið brotin á þúsundum fjölskyldna eftir hrun, til að bjarga fjármálakerfinu, er staðreynd sem stjórnvöld vilja ekki horfast í augu við, hvað þá leiðrétta.
Þrátt fyrir ítarlega og efnislega umsögn samtakanna um þetta stjórnarskrárfrumvarp, er afstaða okkar fyrst og fremst sú að takmörkuð þörf sé á nýrri stjórnarskrá, á meðan ekki er farið eftir mannréttindarákvæðum gildandi stjórnarskrár í þeim tilvikum sem það gæti komið sér illa fyrir fjármálaöflin.
Áður en breytingar verða gerðar á stjórnarskrá, þarf að grandskoða og gera upp brotin á gildandi stjórnarskrá með RANNSÓKNARSKÝRSLU HEIMILANNA.