Kæru félagsmenn,
Hagsmunasamtök heimilanna boða hér með til aðalfundar, þriðjudagskvöldið 25. febrúar 2020 kl. 20:00, í húsnæði Hjálpræðishersins að Álfabakka 12 í Mjóddinni (gengið inn að sunnanverðu).
Dagskrá:
- Skipun fundarstjóra, ritara, og fundarsetning
- Skýrsla stjórnar: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður
- Reikningar samtakanna: Guðrún Harðardóttir, gjaldkeri
- Tillaga stjórnar um ákvörðun félagsgjalda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Kosning 7 aðalmanna í stjórn
- Kosning 3-7 varamanna í stjórn
- Kosning skoðunarmanna
- Önnur mál
Eftirfarandi tillaga um breytingu á samþykktum verður til umfjöllunar á fundinum.
- Núverandi 2. mgr. 9. gr. svohljóðandi:
- Stjórnarstörf eru ólaunuð, svo og þau verkefni sem stjórnarmenn taka að sér fyrir samtökin. Þó er heimilt að greiða fyrir útlagðan kostnað sem til fellur vegna rekstrar samtakanna.
- Orðist svo:
- Stjórnarstörf eru ólaunuð, en heimilt er að greiða fyrir útlagðan kostnað vegna rekstrar samtakanna. Þrátt fyrir það getur stjórnarmaður gefið kost á sér til annarra verkefna en stjórnarstarfa sem stjórn ákveður að kaupa að þjónustu til gegn eðlilegu endurgjaldi hafi atkvæði hans ekki ráðið úrslitum um þá ákvörðun og skal hann þá jafnframt víkja sæti við frekari ákvarðanir stjórnar um verkefnið.
Kosningu til stjórnar verður hagað þannig að í hvorri umferð má hver atkvæðisbær fundarmaður greiða allt að sjö frambjóðendum atkvæði og ræður hreint atkvæðamagn úrslitum. Þurfi að skera úr um röð ef tveir eða fleiri hljóta jafn mörg atkvæði verður dregið um innbyrðis röð þeirra.
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er 7 dögum fyrir aðalfund eða til 18. febrúar kl. 20:00. Framboð má tilkynna með tölvupósti á netfang samtakanna:
Einnig er óskað eftir tilnefningum skoðunarmanna og sjálfboðaliðum í talningu atkvæða á fundinum.
Fundargögn verða birt á heimasíðu samtakanna í aðdraganda aðalfundarins.
Bestu kveðjur,
Hagsmunasamtök heimilanna