Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2014 verður haldinn fimmtudaginn 15. maí kl. 20:00 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg (2. hæð).
Á döfinni
Stjórn HH hefur verið gert viðvart um að sumir félagsmenn hafi ekki fengið fréttabréf sem sent var út til að boða aðalfund samtakanna. Eftir athugun hefur komið í ljós að vandamálið er bundið við netföng á lénum sem hýst eru hjá Vodafone. Stjórn HH harmar þetta og vonar að tilkynningar um aðalfundinn hafi þrátt fyrir þetta borist viðkomandi félagsmönnum, en þær voru birtar hér á heimasíðunni og á Facebook síðu samtakanna.
Aðalfundur HH 2014 verður sem áður sagði haldinn fimmtudaginn 15. maí kl. 20 í sal Stýrimanna skólans við Háteigsveg. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn!
Dómari dæmdur til að dæma í máli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna. -
Síðastliðinn föstudag úrskurðaði Hæstiréttur í máli sem höfðað hefur verið með stuðningi Hagsmunasamtaka heimilanna vegna verðtryggðs láns frá Íbúðalánasjóði. Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem héraðsdómari tilkynnti að hann myndi víkja sæti í málinu vegna þess að hann hefði tekið lán hjá Íbúðalánasjóði árið 2007, en lánið hefði hækkað umtalsvert síðan þá og í ljósi þess gæti hann ekki fjallað efnislega um málið því þá yrði hægt að draga óhlutdrægni hans í efa við úrlausn um lögmæti slíks láns.
Stjórn HH vill vekja athygli á lögum sem samþykkt voru á Alþingi nú rétt fyrir jól um frestun á nauðungarsölum, eftir mikla eftirfylgni og aðhaldi af hálfu HH og með hjálp nokkurra góðra aðila. Þeir sem standa frammi fyrir nauðungarsölu á heimili sínu geta nú sótt um frestun uppboðsins fram yfir 1. september 2014 á sérstöku eyðublaði með ákveðnum skilyrðum sem þar koma fram. Einnig geta þeir sem nýlega hafa misst heimili sín á nauðungarsölum, í þeim tilfellum þar sem samþykkisfrestur er ekki útrunninn, sótt um frest fram yfir 1. september á sama eyðublaði. Hafa ber í huga að samþykkisfrestur er yfirleitt aðeins þrjár vikur og að umsókn þeirra sem þegar hafa misst eignir sínar er háð samþykki kröfuhafa. Þeir aðilar sem eru í þessari stöðu þurfa því að hafa hraðar hendur! Ofangreindur frestur til 1. september 2014 getur nýst heimilum til nýta sér þau úrræði sem boðuð hafa verið eða grípa til varna. Eru félagsmenn HH sem og aðrir hvattir til að kynna sér vel réttindi sín í þessum efnum á meðan fresturinn er í gildi.
Hvers vegna?
Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.
Flýtileiðir
Styrkir
Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202
Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.