Aðalfundur HH verður í kvöld, fimmtudag 31. maí kl. 20:00-22:30 í sal Stýrimannaskólans við Háteigsveg.
Stjórn HH hvetur félagsmenn til að gefa sér tíma til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á val stjórnar, breytingar á lögum samtakanna og fylgjast almennt með störfum samtakanna. Samtökin starfa á lýðræðislegum grunni eftir lýðræðislegum hugsjónum og því aðhald og aðkoma félagsmanna mikilvæg.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir
1. Setning
2. Skýrsla stjórnar: Andrea Ólafsdóttir, formaður stjórnar
3. Reikningar samtakanna: Ólafur Garðarsson, gjaldkeri stjórnar
4. Lagabreytingar (sjá fundargögn á heimasíðu)
5. Kosning 7 manna stjórnar (sjá framboð til stjórnar á heimasíðu)
6. Kosning 7 varamanna
7. Kosning skoðunarmanna næsta árs
8. Önnur mál
a. Umsókn HH að Landssamtökum heimilanna
Ragnar Þór Ingólfsson
b. Tillaga stjórnar að árgjaldi 2012
Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa þannig bein áhrif á stefnu og starfsemi samtakanna. Vinsamlega athugið að aðeins skráðir félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarstarfa og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.
