Hagsmunasamtök heimilanna vilja biðja lántakendur sem eru í samskiptum við Dróma um að senda tilkynningu/kvörtun sem hægt er að nota til að víkja slitastjórninni frá.
Stjórn mun safna saman erindum og útbúa beiðni til héraðsdómara um að víkja frá slitastjórn Dróma og skipa nýja í krafti þeirra kvartana sem berast.
Auglýst er eftir athugasemdum um störf slitastjórnar, stuttri greinargerð frá hverjum og einum þar sem getið er um málavaxtalýsingu, afgreiðslu og yfir hverju er kvartað með dagsetningum og undirritað af viðkomandi.
Staðlað form til útfyllingar er sent hérna með og getur lántakandi valið að senda formið undirritað í pósti til okkar á Frakkastíg 27, húsi Tækniskólans, 101 Rvk.
Eins bjóðum við að fólk afhendi formið til Gunnars Magnússonar stjórnarmanns í HH sem verður á skrifstofu samtakanna í Tækniskólanum, jarðhæð, á þriðjudaginn og fimmtudaginn í þessari og næstu viku frá kl. 13-16.
Kvörtun sem hlaða má niður og breyta og senda til okkar undirritað á
Hagsmunasamtök heimilanna, Frakkastíg 27, húsnæði Tækniskólans, 101 Rvk.