Hagsmunasamtök heimilanna auglýsa eftir hrikalega duglegum einstakling í hlutastarf. Samtökin leita að einstaklingi sem hefur þekkingu og brennandi áhuga á málefnum samtakanna og framtíðarsýn og getur hjálpað til við að byggja upp sterk þverpólitísk samtök sem sinna hagsmunum heimilanna. Viðkomandi þarf að vera trúverðugur, heiðarlegur, málefnalegur og ákveðinn í samskiptum við þá sem þörf er á samskiptum við og hafa færni til að setja fram ritmál og talnaefni. Æskilegt er að hafa menntun eða reynslu sem nýtist í starfi, eða hafa altmuligmands hæfileika til að bera. Ráðið er í starfið frá um það bil miðjum nóvember í tímabundið starf.

Starfssvið
Undirbúningur stjórnarfunda og ritun fundargerða.
Framkvæmd ákvarðana stjórnar og aðstoð við stjórnarmenn með verkefni.
Umsjón með heimasíðu og svörun erinda á tölvupósti og stundum í síma.
Umsjón með fjáröflun og kynningarstarfi samtakanna.
Skipulagning málefnavinnu, félagsfunda, borgarafunda og hvers kyns funda sem samtökin standa fyrir.
Ritun umsagna um lagafrumvörp með aðstoð stjórnar.
Ritun greina og ályktana til birtingar í fjölmiðlum.
Önnur tilfallandi verkefni.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2011.
Umsækjendur sendi umsókn og ferilskrá á