Samtökum lánþega og Hagsmunasamtökum heimilanna hefur borist svarbréf frá Eftirlitsstofnun EFTA, (ESA) hvar tilkynnt er með formlegum hætti að stofnunin ætli að taka kvörtun okkar vegna meintra brota íslenskra stjórnvalda og stjórnsýslu á Evrópurétti til afgreiðslu á grundvelli gildandi EES reglna.

Kvörtunin vísar í vanefndir á Evróputilskipun 93/13/EC í dómaframkvæmd, auk þess að lagasetning nr. 151/2010 gangi þvert á lögleiddan neytendarétt, eignarréttarákvæði stjórnarskrár og umrædda tilskipun um neytendarétt. Sérstaklega er tekið á eftirmálum áður gengisbundinna lána út frá lögum nr. 38/2001. Í kvörtuninni er einnig vakin athygli á verðtryggingu íslenskra neytendarlána og óskað álits ESA á því hvort þar sé gengið gegn ákvæðum gildandi neytendaréttar.
Það vekur athygli samtakanna hve fljótt ESA bregst við kvörtuninni, en samkvæmt bréfi þeirra er erindið móttekið þann 19. apríl og svarið dagsett þann 26. apríl, eða réttri viku síðar. Er rétt að hvetja íslensk stjórnvöld til að taka sér slík vinnubrögð til fyrirmyndar, en hending virðist ráða því hvort bréfum og fyrirspurnum sem til þeirra er beint er yfir höfuð svarað.
Enn er hægt að gerast aðili að kvörtuninni með umboðsveitingu á heimasíðu Samtaka lánþega www.lanthegar.is. Jafnframt styður fólk kvörtunina með því að skrá sig í Hagsmunasamtök heimilanna á www.heimilin.is eða með skráningu í Samtök lánþega.
Þess má geta að framkvæmdastjórn ESB hefur einnig svarað erindi samtakanna og sett það í ferli. Við væntum þess að hún fylgist með málinu og veiti fyrir sína parta túlkun á neytendalöggjöf ESB. Málið kann einnig að hafa vægi í aðildarumsókn Íslands.
