Á þingmannsárum sínum, barðist Jóhanna Sigurðardóttir ötullega gegn verðtryggingunni.
Hún benti meðal annars á óréttlæti þess, að skuldir heimilanna hækki um hundruðir milljónir og jafnvel milljarða í hvert sinn sem nauðsynjavara á borð við kartöflur hækki í verði.

Hún talaði um fáránleika þess að Ísland verðtryggði eitt OECD-landanna húsnæðislán heimilanna og glapræði þess, að þau lán hafi af völdum verðtryggingarinnar margfaldast á sama tíma og þau lækki í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Og að sjálfsögðu krafðist hún þess að stjórnvöld sættu pólitískri ábyrgð fyrir að afnema ekki verðtrygginguna nú þegar í þágu almanna hagsmuna.
Til marks um þessa einörðu baráttu Jóhönnu gegn verðtryggingunni er grein sem birtist eftir hana í Morgunblaðinu 2. nóvember 1996. Þar hefur hún m.a. þetta að segja um aðgerðaleysi þáverandi ríkisstjórnar:
"Allt þetta ætti nú að skapa forsendur til að afnema verðtryggingu á fjárskuldbindingum heimilanna. En allt kemur fyrir ekki. Rökstuðningur ráðherrans í svari við fyrirspurn minni byggist á gamla verðbólguhugsunarhættinum, - sem ríkisstjórnin virðist föst í."
Þá eru lokaorð hennar með hliðjsón af núverandi stöðu heimilanna eftirtektarverð:
"Ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að svara af hverju ísland, sem býr við svipað efnahagsumhverfi og þjóðir sem við berum okkur saman við, hafi eitt landa verðtryggingu á lánum til heimilanna. Og það sem verra er. Ætli að viðhalda henni. Því verður að breyta."
Það átakanlegasta við þessa upprifjun er sú augljósa staðreynd, að þrátt fyrir öll þau ár sem liðin eru frá því að hún birtist, hefur ekkert breyst, nema að fjárskuldbindingar heimilanna hafa hækkað margfalt meira en nokkurn óraði fyrir af völdum verðtryggingarinnar.