Að standa saman er enginn skömm...
Þú veist að það sem þú þarf að gera er að takast á við vandann en ekki að geyma hann og bíða eftir að hann hverfi. Þú þarf að stíga fyrsta skrefið. Raunveruleg endurreisn mun ekki takast nema með sátt og samstöðu okkar allra.

Þess vegna er boðað til samstöðu- og sameiningarsamkomu með framsögum og músík á AUSTURVELLI þann 10. des þar sem við munum minnast þess sem liðið er og láta vita að við erum ennþá til staðar.
Eins og við vitum þá er ekkert sameiningarafl sem er virkt í samfélaginu. Það er því í okkar höndum að haldast í hendur sama hvort þú ert: leikskólakennari, heilbrigðisstarfsmaður, smiður, sjómaður, bankastarfsmaður, kennari, nemandi, ellilífeyrisþegi, öryrki, atvinnulaus eða eitthvað annað.
Með framsögur fara:
Ásgerður Jóna Flosadóttir, frá Fjölskylduhjálpinni.
Rakel Sigurgeirsdóttir, framhaldsskólakennari.
Jóna Guðleif Sigurjónsdóttir, ellilífeyrisþegi (áttræð)
Kristjan Johann Matthíasson , Öryrkji.
Jón Bjarki Magnússon mun lesa upp úr ljóðabók sinni. Lömbin í Kambódíu (og þú)
Fundarstjóri: Halldór G Gunnarsson.
Þá munu LAME DUDES spila auk Blússveitar Þollýar. Einnig mun Græni jólakórinn mæta á svið. Áræðilegar heimildar herma, að Jólasveinar muni láta sjá sig.
*************************