Símatími

Mán - þri kl. 10-13

Á döfinni

VLFA styrkir HH og lýsir yfir stuðningi

Verkalýðsfélag Akraness hefur styrkt Hagsmunasamtök heimilana um kr. 200.000 og gefið sérstaka yfirlýsingu á heimasíðunni um stuðning við þjóðarsáttartillögu HH, kröfur samtakanna um leiðréttingu og tillögur um lausnir um hvernig megi mæta vandanum.

Stjórn HH vill þakka VLFA stuðninginn og sendir félagsmönnum kærar kveðjur og þakkir. Jafnframt hvetja samtökin fleiri verkalýðsfélög til að kynna sér tillögur HH og hiklaust spyrja félagsmenn álits.

Útdráttur úr yfirlýsingu VLFA:

"Verkalýðsfélag Akraness hefur frá upphafi stutt Hagsmunasamtökin af fullum hug í þeirri baráttu að bæta stöðu skuldsettra heimila, meðal annars með almennum leiðréttingum á skuldum. HH hafa lagt fram ítarlegar tillögur til að mæta skuldavanda heimilanna og eru þetta tillögur í anda þess sem Verkalýðsfélag Akraness hefur ætíð talað fyrir."

Lesa yfirlýsingu VLFA á heimasíðunni þeirra.

Sigtúni 42
105 Reykjavík
ICELAND

(+354) 546 1501
heimilin@heimilin.is

Hvers vegna?

Tilgangur samtakanna er að veita fólkinu í landinu möguleika til að sameinast og að taka þátt í að verja hagsmuni heimilanna, og vera talsmaður og málsvari í umræðum um hagsmuni heimilanna.

Styrkir

Viltu styrkja samtökin?
Kennitala:
520209-2120
Reikningsnúmer:
1110-26-5202

Smelltu hér til að skrá þig í samtökin.