Óháð ráðgjafarþjónusta á fjármálamarkaði
Hagsmunasamtök heimilanna bjóða félagsmönnum óháða ráðgjöf um lánamál og viðskipti við fjármálafyrirtæki. Áhersla er lögð á réttindagæslu og lausnir sem miða eingöngu að hagsmunum heimilanna, enda eru fjármálafyrirtæki sjálf ekki hlutlaus ráðgjafar í eigin málum.
Ráðgjöfin byggir á þekkingu á neytendavernd á fjármálamarkaði og þeirri reynslu sem safnaðist eftir fall bankanna 2008. Samtökin eru óhagnaðardrifið almannaheillafélag.
Kostnaðarþátttaka
Til að fá þjónustu þarf að vera skráður félagsmaður. Árlegt félagsgjald er 5.900 kr. og valkvætt – einnig má styrkja samtökin um aðra fjárhæð. Greiðsluseðill birtist í heimabanka einu sinni á ári.
Hafðu samband
Sendu okkur tölvupóst á heimilin@heimilin.is og við svörum samdægurs eða næsta virka dag. Símatími er mánudaga og þriðjudaga kl. 10–13 í síma (+354) 546 1501.