Félagaskráning

Þitt nafn / Name*
Kennitala / Social security*
Netfang / Email *
Símanúmer / Phone number*
Heimilisfang / Address*
Póstnúmer / Post number*
Staður / City or town*
Póstlisti / Mailing list*
Ég vil vera á póstlista
Ég vil ekki vera á póstlista
Kannanir / Surveys
Ég vil taka þátt í könnunum á vegum samtakanna
Athugasemdir / Message - optional
Skrá mig í samtökin

Með skráningu hér verður þú fullgildur meðlimur í samtökunum. Vinsamlegast sendu svo póst á heimilin@heimilin.is ef þú vilt vera virkur þátttakandi í umræðunni og/eða starfinu.

Ath. engar hvaðir hvíla á meðlimum samtakanna hvorki fjárhagslegar né aðrar. Félagsgjöld eru lág en valfrjáls.

Mikilvægast er að ljá málefnum heimilanna stuðning með nafni sínu. Það er samtökunum mest virði.

Þú fengir tölvupósta með tilkynningum og fréttum um atburði í tengslum við málefnið.

ATH. Póstlistinn gefur kost á að afskrá sig af honum þegar þar að kemur. Þetta er því ekki varanleg stilling. Netföng eru í engum tilfellum afhent útfyrir samtökin og verða ekki misnotuð fyrir auglýsingaskrum.

Þú fengir hugsanlega stöku sinnum tölvupósta með hlekk á kannanir þar sem þér gefst kostur á að velja úr valkostum og segja þitt álit og gefa upplýsingar..
Kostur á afskráningu fylgir með öllum könnunum. Svörin eru nafnlaus og órekjanleg eftir þátttöku, (nafni og netfangi eytt).

© Hannað af Filmís 

Hagsmunasamtök heimilanna voru stofnuð 15. janúar 2009 og eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Orð frá formanni

CEO 

Orð frá formanni Varlega áætlað hafa 15.000 fjölskyldur, 45.000 einstaklingar misst heimili sín frá hruni. Enginn hefur svarað fyrir það, hvað þá axlað á því ábyrgð. 

Þegar 15% þjóðarinnar missa heimili sín, gætir áhrifanna víða. Við sjáum þau í ástandinu á leigumarkaði og við sjáum þau líka í auknum kvíða meðal ungmenna og kulnun hjá þeim sem eldri eru.

Þegar fólk er svipt heimilum sínum glatar það öryggi sínu sínu og fótfestu. Þegar við bætist magnvana reiði og örvænting vegna óréttlætisins sem það stendur frammi fyrir ásamt hjálpar- og varnaleysinu sem það upplifir þegar heimilinu er hreinlega stolið af því, er ekki nema von að eitthvað láti undan.

Spillingin í þjóðfélaginu er djúp og hún á sér margar hliðar. Hún birtist ekki bara í háu húsnæðisverði og skelfilegum leigumarkaði eða háum vöxtum og verðtryggingu, hún birtist ekki bara í því hvernig lífeyrissjóðirnir misfara með fé okkar allra eða í „krónu á móti krónu“ skerðingu, hún birtist ekki bara í lágum launum verkafólks á meðan sjálftökufólk af ýmsum toga skammtar sjálfu sér milljónir, hún birtist ekki bara í spilltum dómstólum sem gæta hagsmuna „hinna sterku“ í dómum sínum eða í því hvernig lög- og stjórnaskrárvarin réttindi hafa verið brotin á neytendum frá hruni með skelfilegum afleiðingum.

Nei, hún birtist í þessu öllu og meiru til. Spillingin er djúp og teygir anga sína víða. Hana þarf að rífa upp með rótum til að hægt sé að byggja upp nýtt og betra þjóðfélag.

Fyrsta skrefið væri að að afnema verðtryggingu á lánum heimilanna! Öðruvísi er ekki hægt að skapa eðlilegan húsnæðismarkað eða stöðva sjálftöku fjármálastofnanna á tekjum fólks.

En til að takast á við ræturnar þarf að fara fram rannsókn á aðgerðum stjórnvalda eftir hrun. Jú það var líka spilling fyrir hrun, en þá urðu ákveðin vatnaskil og það var þá sem meðvituð ákvörðun var tekin um að fórna heimilum landsins fyrir bankana.

15.000 heimili eiga skilið að fá svör og uppreist æru.

Við biðjum ykkur um að styðja kröfuna um Rannsóknarskýrslu heimilanna!

Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður HH

Fylgstu með á samfélagsmiðlum