svipan.is hefur alla tíð verið einn fárra fjölmiðla sem hafa fylgst mjög vel með starfi Hagsmunasamtaka heimilanna og birt á fréttasíðunni. Þeir tóku upp töluvert af félagsfundinum 15. janúar og erum við þeim þakklát fyrir það. Smellið hér til að sjá og heyra erindin sem flutt voru í upphafi fundar.
Við viljum vekja athygli á meðfylgjandi viðtali við Jóhannes Björn Lúðvíksson, höfund bókarinnar Falið Vald. Jóhannes hefur verið óhugnanlega sannspár hvað varðar hrun bankanna. Hér ræðir hann m.a. áhrif þess að gera ekkert til að rétta af skuldavanda heimilanna. Viðtalinu var útvarpað á Útvarpi Sögu undir stjórn Guðmundar Franklín Jónssonar. Viðtalið er hér birt á vefnum hjariveraldar.is.