sæl og blessuð
mig langar að senda ykkur smá sögu ...
ég á Izuzu Trooper, árg 2002 sem ég keypti á 1.790.000 fyrir næstum 2 árum síðan ...
tekið var erlend lán upp á 1.5mill .... bíllinn er búinn að vera á sölu í næstum 9 mánuði án árangurs ...
þannig að ég ákvað að droppa verðinu niður fyrir 1 millj og sjá hvað gerðist ...
í gær fékk ég tilboð upp á 890þús sem ég vill bara samþykkja og losna við bílinn ...
lánið stendur í dag í 3.2 millj og LÝSING bannar mér að selja hann, NEMA AÐ ÉG GERI UPP MISMUNINN!!
það er EKKERT annað í boði, segja þeir! - þar sem ég hef engar 2,4millj til þess borga upp lánið (enda myndi ég aldrei gera það þar sem ég tók 1.5millj kr lán á bílinn!), þá vilja þeir semsagt frekar að þeir rifti samningnum og hirði bílinn, í stað þess að fá allaveganna 890þús inn á lánið og reyna síðan að díla eitthvað um mismuninn!!?? ... hvað er að þessu fyrirtæki!!!!!?????? :-(
kv
Björn






















p.s. Ég held að skaparinn hafi bara búið til x margar sálir og þar sem fólksfjölgun er töluverð í heiminum bara hljóta að vera til mun færri sálir en líkamar. Þannig hugsa ég að það sé töluvert mikið af sálarlausu fólki þarna úti. Mín besta ágiskun er sú að þessir líkamar feli sálarleysið á bak við jakkaföt og háskólagráður.
Hvernig stendur á því að þetta fyrirtæki hefur starfsleyfi ????
Þetta er sannkallað glæpafyrirtæki, ég mun ALDREI versla við þá og er viss um að þessar sögur allar munu verða til þess að margir fleiri munu taka sömu ákvörðun.