HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Greinargerð um sértæka skuldaaðlögun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um samkomulag fjármálafyrirtækja um sértæka skuldaaðlögun

Inngangur

Á vef Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) hefur verið birt tilvísun í samkomulag fjármálafyrirtækja um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun (hér vísað á skjalið á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins), en það var undirritað 31. október sl. af fulltrúum fjölmargra fjármálafyrirtækja. Aðkoma lántaka eða Talsmanns neytenda er engin að skjalinu, að því að Hagsmunasamtök heimilanna (HH) best vita.

Skjalið er byggt á heimild í 2. gr. laga nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishruns, en í greininni segir meðal annars:

„..Heimilt er eftirlitsskyldum aðilum á fjármálamarkaði að móta með samkomulagi sín á milli samræmdar verklagsreglur um skuldaaðlögun sem gildi tímabundið..“
Lesa meira...
 

Fréttatilkynning vegna hugmynda um skattkerfisbreytingar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vegna umræðu á Alþingi og í fjölmiðlum um hugsanlegar skattkerfisbreytingar og umræðu um lögmæti gengistryggðra lána vilja Hagsmunasamtök heimilanna taka eftirfarandi fram:

Hagsmunasamtök heimilanna mótmælta harðlega öllum hugmyndum um að auka álögur á heimilin í landinu.  Heimilin eru þegar að kikna undan þeirri greiðslubyrði sem á þau hefur verið lögð með óréttmætri stökkbreytingu á höfuðstóli lána þeirra.  Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á þessu ári rýrnað um hátt í 10% og mun sú þróun halda áfram á næsta ári.  Hækkun neysluskatta fer beint út í verðlagið og þaðan yfir í verðtryggð lán heimilanna.  Skora samtökin því á stjórnvöld að leita annarra leiða til loka fjárlagagatinu.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa auglýst eftir því, að gerð sé hagspá fyrir heimilin í landinu.  Slík spá nái út árið 2012.  Hin miklu efnahagsumbrot undanfarinna ára hafa mikil áhrif á hag heimilanna, en þeim er ætlað af standa undir veltunni í þjóðfélaginu.  Hækkanir á höfuðstóli lána, breyting á kaupmætti, verðbólguþróun, skattakerfisbreytingar, atvinnustig, allt hefur þetta áhrif afkomu heimilanna, en samt er ekki talin þörf á því að gera hagspá fyrir heimilin eins og þau séu einhver afgangsstærð.  Hvetja samtökin stjórnvöld til að sjá til þess, að slík hagspá verði gerð hið bráðasta.  Hafa skal í huga, að samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands og niðurstöðum skoðunarkönnunar samtakanna, eru tæp 20.000 heimili með greiðslubyrði yfir hættumörkum og önnur 44.000 rétt svo ná endum saman, m.a. með því að ganga á sparnað.  Hætt er við því, að hugsanlegar skattkerfisbreytingar stjórnvalda muni ýta verulegum fjölda heimila til viðbótar fram af hengifluginu.  Er það virkilega það sem við þurfum?

Lesa meira...
 

Morgunverðarfundur velferðarvaktar miðvikudag 11. nóv.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Velferðarvakt Félags- og tryggingamálaráðuneytisins
stendur fyrir morgunverðarfundi um skuldavanda heimilanna
á Grand Hótel, miðvikudaginn 11. nóvember n.k. kl. 8.30-10.00

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis
 

Friðrik Ó Friðriksson tekur við formennsku Hagsmunasamtaka heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þórður Björn Sigurðsson lét af formannshlutverki sínu og sagði sig jafnframt úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna á stjórnarfundi að kvöldi 5. nóvember 2009. Þórður tilkynnti stjórninni að hann hefur tekið að sér starf aðstoðarmanns formanns Hreyfingarinnar og í ljósi samþykkta HH um hlutleysi samtakanna gagnvart stjórnmálaflokkum mæti hann stöðu sína svo að hann yrði að víkja úr stjórn HH til að sinna hinu nýja starfi.

Stjórn HH færir Þórði bestu þakkir fyrir frábært starf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Þess má geta að Þórður er einn af frumkvöðlum samtakanna en þau spruttu úr undirskriftasöfnun sem Þórður hóf í nóvember 2008. Samþykktir félagsins kveða á um að stjórnin skipti með sér verkum. Stjórnin var einróma um að óska eftir því við Friðrik Ó Friðriksson að hann tæki við hlutverki formanns. Friðrik þáði stöðuna og þakkaði stjórninni traustið. Vænta má skeytis frá nýja formanninum til félagsmanna fljótlega.

Arney Einarsdóttir var kjörin gjaldkeri samtakanna og Guðrún Dadda Ásmundardóttir færðist sjálfkrafa úr varastjórn í aðalstjórn en það er byggt á atkvæðafjölda við stjórnarkjör á aðalfundi samtakanna í apríl 2009.

Lesa má skilaboð Friðriks til félagsmanna hér.

 

Yfirlýsing HH vegna skýrslu AGS (IMF)

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS koma m.a. fram upplýsingar um mat á virði þeirra lánasafna sem heimilin eru ábyrg fyrir.

Samkvæmt greiningu Hagsmunasamtaka heimilanna á ofangreindum upplýsingum er raunvirði umræddra lánasafna metið á 80% hjá Íbúðalánasjóði, á hálfvirði hjá sparisjóðum og öðrum lánafyrirtækjum, 56% hjá Íslandsbanka, 55% hjá Nýja Kaupþingi og 53% hjá Nýja Landsbankanum.  Að meðaltali gerir þetta 65%.

Út frá þessum upplýsingum draga samtökin þá ályktun að AGS telji mun meiri þörf fyrir niðurfærslu skulda heimilanna en áður hefur komið fram.  Það mætti jafnvel halda því fram að samkvæmt ofangreindum upplýsingum þurfi að færa skuldir heimilanna niður um 35% að meðaltali til að jafnvægi náist.

Lesa meira...
 

AGS telur þörf á niðurfærslu íbúðalána

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Að sögn Marinós G Njálssonar, stjórnarmanns HH segir skýrsla AGS þörf fyrir 35% niðurfærslu skulda heimilanna.

"Rök mín fyrir niðurfærslunni eru að með því verður skuldastaðan þekkt, greiðsluviljinn styrkist þar sem fólk finnur að það hefur náð fram réttlæti, meiri líkur eru á því að lán haldist í skilum, velta á fasteignamarkaði kemst af stað og svona mætti lengi telja.  Vissulega verður ríkið sett í erfiða stöðu, ef þetta verður gert í gegn um bankana.  Það gerir stöðu Íbúðalánasjóðs sérkennilega og gæti haft áhrif á endurreisn einhverra sparisjóða.  Því er mikilvægt að þetta verði gert miðlægt."

Lesa alla greinina eftir Marinó hér.

 

Fullt út úr dyrum á fundi í Iðnó

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Færri komust að en vildu á opnum borgarafundi í Iðnó, mánudagskvöldið 2 nóv. 2009. Framsögumenn voru Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra, Marinó G. Njálsson úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna, Jóhann G. Jóhannsson viðskiptafræðingur og Theódór Norðkvist úr greiðsluverkfallsstjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.

Erindin voru snörp, félagsmálaráðherra fór yfir aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Marinó G Njálsson veitti þeim harða gagnrýni í kjölfarið. Jóhann G. Jóhannson sagði frá tillögum sínum varðandi yfirfærslu allra íbúðalána yfir í Íbúðalánasjóð og er óhætt að segja að tillögurnar vöktu mikla athygli fundargesta. Theódór Norðkvist fór yfir bakgrunn, tilgang og árangur síðasta greiðsluverkfalls og tilkynnti jafnframt um næsta greiðsluverkfall 15. nóvember til 10 desember við mikinn fögnuð fundargesta.

Lesa meira...
 

Svindlað með notkun gjaldmiðla sem eru ekki til

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nokkuð hefur verið rætt um lögmæti gengistryggðra lána, þ.e. hvort heimilt sé að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla sbr. lög nr. 38/2001 um vexti og verðbætur.

Hér á landi er einnig að finna fyrirtæki sem býr til sína eigin gjaldmiðla og stjórnar gengi þeirra. Lánaskuldbindingar í íslenskum krónum eru í þeim tilfellum bundnar við gengi gjaldmiðla sem eru ekki til nema ofan í skúffu viðkomandi fyrirtækis.  Þetta er SP - fjármögnun sem notar gjaldmiðlana SP1, SP2, SP3, SP4 og SP5. Þessa gjaldmiðla hefur fyrirtækið nefnt myntkörfur en þegar betur er skoðað er óhætt að fullyrða að um sé að ræða heimatilbúna gjaldmiðla. SP-fjármögnun skráir kaup - og sölugengi þeirra á heimasíðu sinni og segir m.a.: „Kaup - og sölugengi á "gjaldmiðlunum" SP1, SP2, SP3, SP4 og SP5 er reiknað daglega út frá gengi þeirra mynta sem karfan er samsett úr.”  (ath. gengið ætti  einnig að reiknast út frá vægi myntar í körfu).

Lesa meira...
 

Boðað til greiðsluverkfalls 15. nóv til 10 des 2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Greiðsluverkfallsnefnd HH hefur að vel ígrunduðu máli ákveðið að boða til GREIÐSLUVERKFALLS FRÁ 15. NÓV. TIL 10. DES. 2009.

Að mati stjórnar HH hefur á engan hátt verið svo mikið sem nálgast kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna um leiðréttingu höfuðstóla íbúðalána heimilanna hvað þá leiðréttingu á öðrum neytendalánum eða endurskoðun á verðbreytingarákvæðum íbúðalána og útreikningum verðtryggingar. Hvorki stjórnvöld, Samtök fjármálafyrirtækja né Landssamband lífeyrissjóða hafa tekið boði samtakanna um samningaviðræður.

Lesa meira...
 

Drög að samkomulagi um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Samkomulag fjármálafyrirtækjanna er að finna í meðfylgjandi pdf-skjali en það má lesa með því að smella á "lesa meira" og svo á hlekkinn neðst í textanum.

Hagsmunasamtökum heimilanna barst skjal í hendur fyrir nokkrum dögum. Það inniheldur samkomulag dagsett 12. október  um verklagsreglur Samtaka fjármálafyrirtækja, fyrir hönd aðildarfyrirtækja sinna, Íbúðalánasjóðs og Landssamtaka lífeyrissjóða, fyrir hönd aðildasjóða sinna, um sértæka skuldaaðlögun.  Við höfum ekki viljað birta þetta skjal fyrr til að trufla ekki afgreiðslu Alþingis á frumvarpi félagsmálaráðherra til laga um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.  Var það gert í þeirri von, að tekið yrði að einhverju leiti tillit til ábendinga okkar um víðtækt samráð allra aðila um setningu verklagsreglnanna.  Nú er ljóst að félags- og tryggingamálanefnd hlustaði ekki á áfrýjunarorð okkar, en ákvað í staðinn að kröfuhafar væru hæfastir til að setja reglunar sem ráða örlögum fjölmargra heimila í landinu.

Lesa meira...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Fréttamenn óska eftir viðtölum

Þó nokkuð er um að fréttamenn leiti til samtakanna um að komast í samband við viðmælendur sem hafa orðið fyrir barðinu á kreppunni í einu eða öðru formi. Við viljum hvetja fólk til að senda okkur tölvupóst á heimilin@heimilin.is og gefa upp nafn og síma svo hafa megi samband þegar til okkar er leitað.

Nánar...

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Innskráning notenda