Enn einn vel heppnaður kröfufundur á Austurvelli er að baki. Ræðumenn voru Bjarki Steingrímsson, varaformaður VR, Axel Pétur Axelsson, stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Lúðvík Lúðvíksson var fundarstjóri. Í lokin fluttu Föruneyti rokksins tvö lög (Ugla og Saga). Björn Þorri Viktorsson lögfr. gaf heitt kakó, nokkrir þingmenn komu út að fylgjast með. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Nýtt Ísland.
Af gefnu tilefni vill stjórn HH geta þess að skoðanir ræðumanna eru ávallt þeirra eigin. Fundirnir eru vettvangur til að viðra ýmis sjónarmið, fundargestir taka undir eins og þá listir. Fundirnir eru ekki til þess gerðir að einoka með stefnu HH en sjónarmið HH fá alltaf að heyrast og kröfur samtakanna um leiðréttingu stökkbreyttra lána heimilanna eru grunntónninn í fundunum.
Við hvetjum félagsmenn að koma og láta í sér heyra á hverjum laugardegi. Þessir fundir eru komnir til að vera á laugardögum kl. 15:00 í vetur.






Eitthvað er á reyki hversu margir sóttu útifundinn á Austurvelli. Fimm mínútum fyrir fundinn virtust fáir mættir en nokkrum mínútum síðar streymdi fólk að þ.e. um leið og Andrea J Ólafsdóttir og Guðrún Dadda Ásmundardóttir fundarstjórar tóku til máls. Greinilegt var að fólk beið á kaffihúsunum í kring eftir að heyra eitthvað. Um 15:10 voru allt að eitt þúsund manns á Austurvelli. Myndir sem teknar voru af fundinum benda til að fólk hafi verið að koma og fara þær 30 mínútur sem framsögumenn fluttu erindi sín. Einhver fjölmiðill taldi 200 manns en það hefur líklega verið áður en fundur hófst eða eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Þannig fréttaflutningur er frekar bágborinn satt best að segja og virðist miða að því að gera lítið úr viðburðinum.
Annað greiðsluverkfall Hagsmunasamtaka heimilanna hefst 15. nóv. og stendur til 10. des. 2009. 














