Nýtt Ísland hefur ákveðið að draga sig út úr samstarfi um Alþingi götunnar. Í fréttatilkynningu frá NÍ kemur fram hörð gagnrýni á samráðsstjórn AG, ásakanir um vinstri slagsíðu ofl. HH og NÍ höfðu samstarf um fundi á Austurvelli í vetur en síðar var ákveðið að hleypa fleirum að samstarfinu undir merkjum Alþingis götunnar.
Að sögn Gurðúnar Döddu Ásmundardóttur, forsvarsmanns AG og stjórnarmann HH, hefur úrsögn NÍ ekki neinar breytingar í för með sér á þeirri dagskrá sem þegar hefur verið ákveðin á morgun laugardaginn 20. mars.
Hvað Hagsmunasamtök heimilanna varðar er ekkert annað í stöðunni að svo stöddu en að virða ákvörðun NÍ, þakka fyrir samstarfið á liðnum mánuðum og óska þeim velfarnaðar.






Dagskrá Alþingis götunnar á laugardaginn verður eftirfarandi:
Ríkisstjórnin kynnti í gær umfangsmiklar aðgerðir vegna "skuldavanda heimilanna" (er í raun innheimtuvandi fjármálafyrirtækja). Hagsmunasamtök heimilanna fagna mörgu sem þar kemur fram, en taka skýrt fram að þessar aðgerðir, sem eru skref í rétta átt, eru á engan hátt fullnægjandi til að lina þjáningar, bæta það tjón og forsendubrest sem heimili landsins urðu fyrir vegna fjárglæfra stjórnenda fjármálafyrirtækja, meingallaðrar efnahagsstjórnar og eftirlits. Ekkert í aðgerðum þriggja ríkisstjórna hefur falið í sér neitt til að leiðrétta óréttláta og stökkbreytta hækkun höfuðstóls lána heimilanna. Vandséð er hvernig þessar aðgerðir leiði til sátta í samfélaginu eða enduruppbyggingar hagkerfisins.
Eftirfarandi er útdráttur úr dómsorði:
Tólfti og síðasti samstarfsfundur HH og NÍ fór vel þrátt fyrir mikla snjókomu. Gunnar Skúli frá Attac flutti ræðu, Lúðvík fór með kröfur NÍ, Theódór flutti ræðu fyrir hönd Greiðsluverkfallsstjórnar og Aðalsteinn Baldursson frá Stéttarfélaginu Framsýn kom í heimsókn frá Húsavík og þrumaði yfir vellinum með miklum norðlenskum krafti.














