Mánudagur, 28 Júní 2010 11:40
Hermann Guðmundsson hefur endurbirt á pressan.is eldri grein þar sem honum fannst hún eiga fullt erindi inn í núverandi umræðu. Óhætt er að segja að HH geti tekið undir þá skoðun Hermanns.
"Er verðtrygging ólögleg? Mikill meirihluti landsmanna er skuldari að verðtryggðum lánum. Almennt telur fólk að þessi lán séu í íslenskum krónum. Það er auðvitað alrangt eins og ég mun rekja hér síðar. Það er algert grundvallaratriði þegar skuldbinding verður til að báðir málsaðilar viti fyrir víst hvað sú skuldbinding felur í sér. Íslensk verðtryggð lán eru þeim eiginleikum gædd að hvorki skuldari né lánveitandi hafa nokkra hugmynd um það hvert verður endavirði lánsins. Fyrir nokkrum árum var tekin upp sú vinnuregla að meta greiðsluhæfi lántakenda horft til lengri tíma. Slíkt mat var hins vegar allan tímann gagnslaust vegna þess að enginn gat séð fyrir þróun lánsins, þróun ISK eða þróun á erlendum mörkuðum. ..." Lesa alla greinina á pressan.is
Föstudagur, 25 Júní 2010 19:41
Ólafur Garðarsson
Í fjölmiðlum fer nú fram skemmtilegt sjónarspil. Segja má að erfitt reynist að hreinsa kusk af hvítflibba fjármálafyrirtækjanna. Fúskið hefur verið afhjúpað enn og aftur og í þetta sinn fyrir Hæstarétti sem úrskurðaði gengistryggingu endanlega ólöglega í kjölfarið. Eina mínútuna koma yfirlýsingar frá viðskiptaráðherra um að dóm hæstaréttar beri að virða og það næsta sem maður veit er að setja eigi svonefnda "íslenska" vexti á gengistryggð og nú leiðrétt lán, til að koma í veg fyrir að þessir tilteknu lántakar "græði" á kostnað annarra.
Lesa meira...
|
Mánudagur, 21 Júní 2010 16:20
Fréttatilkynning frá Hagsmunasamtökum  heimilanna vegna gengistryggðra lána
Hagsmunasamtök heimilanna hvetja allar lánastofnanir, sem veitt hafa lán er gætu fallið undir dóma Hæstaréttar nr. 92/2010 og 153/2010, að stöðva allar innheimtuaðgerðir vegna þeirra lána hvort heldur þau voru veitt til einstaklinga eða fyrirtækja. Að minnsta kosti skal takmarka innheimtu við upphaflega greiðsluáætlun, þ.e. án allra breytinga á gengi.
Forráðamenn fjölmargra fjármálafyrirtækja hafa komið fram í fjölmiðlum, lýst lán síns fyrirtækis vera öðruvísi en þau lán sem fjallað var um í dómum Hæstaréttar og dómana því ekki ná til þeirra. Samtökin furða sig á þessum yfirlýsingum, þar sem dómar Hæstaréttar eru mjög afdráttarlausir varðandi ólögmæti gengistryggingar. Í dómsorði með dómi nr. 153/2010 segir m.a.:
Lesa meira...
Mánudagur, 21 Júní 2010 15:19
Hagsmunasamtökum heimilanna barst bréf frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu sl. föstudag, þar sem samtökin voru beðin um tillögu að málsmeðferð vegna dóma Hæstaréttar um gengistryggð lán. Samtökin sendu ráðuneytinu ályktun um efnið í morgun er það að finna í meðfylgjandi skjali.
Ályktun Hagsmunasamtaka heimilanna um málsmeðferð gengistryggðra lána eftir niðurstöðu Hæstaréttar
Föstudagur, 18 Júní 2010 07:42
TIL HAMINGJU ÍSLENDINGAR Fjármálastofnanirnar fengu gula spjaldið frá Héraðstdómi Reykjavíkur og nú rauða spjaldið frá dómurum Hæstaréttar. Fjármálafyrirtæki landsins hafa flest farið gróflega út af sínu spori undanfarin ár, sem bakhjarl heimila og fyrirtækja. Þær stofnanir landsins sem áttu að sjá til þess að vörur fjármálafyrirtækja væru boðlegar neytendum og löglegar brugðust algerlega hlutverki sínu. Nú hefur fjölskipaður Hæstiréttur úrskurðað í þremur fordæmisgefandi málum að fjölmargar fjármálavörur, sem hafa verið í boði fyrir neytendur og atvinnulíf undanfarin ár séu ólöglegar, þ.m.t. gengistrygging fjárskuldbindinga.
Lesa meira...
Miðvikudagur, 16 Júní 2010 16:51
Spennan í dómsal var næstum óbærileg mínúturnar í aðdraganda dómsuppkvaðningar Hæstaréttar. Hæstiréttur hefur staðfest skilning okkar á lögum um vexti og verðbætur (38/2001) hvar bannað er að miða verðbreytingar lána við dagsgengi erlendra gjaldmiðla. Til hamingju heimili landsmanna. Sjá nánar hér síðar um þennan viðburð.
Sjá dómsniðurstöður hér:
http://haestirettur.is/domar?nr=6715 http://haestirettur.is/domar?nr=6714 http://haestirettur.is/domar?nr=6719
Fimmtudagur, 10 Júní 2010 09:11
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vill benda á að fullyrðingar forsætisráðherra um að aðgerðir stjórnvalda hafi bjargað þúsundum heimila frá gjaldþroti, standast ekki skoðun. Þrátt fyrir þá staðreynd að fjármálastofnanir hafa í stórum stíl haldið að sér höndum með aðfarargerðir liggja fyrir þúsundir nauðungarsölubeiðna hjá sýslumönnum.
Ástandið versnar með degi hverjum og því lengur sem beðið er með alvöru aðgerðir því erfiðara verður að greiða úr flækjunni. Þær upplýsingar sem hafa borist HH síðastliðið ár auk nýrra upplýsinga frá Creditinfo gefa ekki tilefni til að fagna árangri hjá stjórnvöldum.
Lesa meira...
Miðvikudagur, 02 Júní 2010 21:59
Ólafur Garðarsson
Tvö mál er varða gengistryggingu neytendalána voru flutt fyrir Hæstarétti miðvikudagsmorgun 2. júní 2010. Ólafur Rúnar Ólafsson varðist fyrir Jóhann Rafn Hreiðarsson og Trausta Snæ Friðriksson, sókn Sigurmars K. Albertssonar fyrir Lýsingu hf. Sigurmar K. Albertsson varði einnig SP-fjármögnun gegn áfrýjun Björns Þorra Viktorssonar fyrir Óskar Sindra Atlason. Málin voru flutt sem einn viðburður saman fyrir fimm dómurum hæstaréttar, en vegna líkinda með málunum skiptu lögmennirnir með sér verkum. Lögmennirnir reyndu að forðast að endurtaka efnistök hvors annars og náðu þannig væntanlega fram umtalsverðum tímasparnaði bæði fyrir sig sjálfa og Hæstarétt.
Lesa meira...
Mánudagur, 10 Maí 2010 23:35
Tilvitnun í umsögn Landsbanka Íslands frá 1966 um frumvarp sem þá var lagt fram á Alþingi:
Samþykkt þessara ákvæða, þótt aðeins sé i heimildarformi, getur aðeins vakið tálvonir um úrlausnir eftir ófærum leiðum og dregið athyglina frá aðalatriðinu, að til er ein örugg leið til verðtryggingar á sparifé, sem sé að forðast það, sem verðrýrnuninni veldur, sjálfa verðbólguna.
Lesa meira...
Sunnudagur, 09 Maí 2010 22:35
Eftirfarandi er tilvitnun í Úlf Eldjárn en lesa má allt viðtalið við á mbl með því að smella á hlekkinn neðst. Úlfur var einnig í viðtali við Egil Helgason á RÚV sunnudaginn 9. maí 2010
"Það versta er að þótt stjórnmálamennirnir segi annað, þá hagar kerfið sér samt eins og vandi skuldara sé sjálfsprottinn – þeim sjálfum að kenna. Kerfið kemur fram við fólk í skuldavandræðum eins og fjáróreiðumenn á meðan vandi þeirra er í raun tilkominn vegna vanhæfra stjórnmálamanna, mistaka embættismanna og ekki síst siðleysis og glæpa fyrrverandi eigenda og stjórnenda bankanna."
Smelltu hér til að lesa alla greinina.
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |