Ágætu þingmenn. Við lestur á yfirlýsingu formanns sendinefndar AGS við lok heimsóknar til Íslands þann 13. marz 2009 (sjá lauslega þýðingu mína og enska texta hér að neðan) og í ljósi þess að húsnæðislán Gömlu bankanna virðast hafa verið yfirtekin af Nýju bönkunum á nafnvirði og með óbreyttum kjörum, þá fæ ég ekki betur séð en að skuldsett heimili landsins hafa nú þegar fengið alla þá fyrirgreiðslu frá stjórnvöldum sem þeim mun standa til boða.






Niðurstöður rafrænnar skoðanakönnunar Hagsmunasamtaka heimilanna varðandi svör stjórnmálaflokka við spurningum HH í Fréttablaðinu 6. apríl sl. Svörin voru birt í Fréttablaðinu 20. apríl en þau eru
Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness haldinn 21. apríl 2009 skorar á íslensk stjórnvöld að grípa til tafarlausra aðgerða vegna gríðarlegs vanda heimilanna. Í dag eru um 40 þúsund einstaklingar með neikvæða eiginfjárstöðu sem nær til um þriðjungs allra heimila í landinu. Það er ljóst að neikvæð eiginfjárstaða heimilanna á einungis eftir að versna til muna því Seðlabankinn gerir ráð fyrir að fasteignaverð eigi eftir að falla um allt 50% að raungildi.
Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst verulega til hins verra á síðustu mánuðum. Því miður sýnir reynslan að eitt af því sem foreldrar neyðast til að spara þegar þrengir að eru tannviðgerðir og eftirlit hjá börnum og unglingum. Dregið hefur stórlega úr þáttöku íslenskra stórnvalda í kostnaði vegna tannheilsu barna og við blasir gífurleg hætta á tannskemmdum og jafnvel vanlíðan barna og unglinga um þessar mundir. Í sumum tilfellum bíður fólk þess aldrei bætur. Tannlæknar hafa ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá börnum og unglingum. Skorað er á barnafjölskyldur sem búa við kröpp kjör að nýta sér þetta tækifæri til ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri.
Húsfyllir á kynningarfundi Hagsmunasamtaka heimilanna um hópmálsókn 














