HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Umboðsmaður Alþingis krefur SÍ og FME svara

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis hefur sent Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu fyrirspurn vegna tilmæla þeirra síðarnefndu til fjármálafyrirtækja varðandi dóm Hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar lánasamninga. UA gefur engar undankomuleiðir í bréfinu. Svörin skulu tilgreina og rökstyðja lagagrundvöll og ásetning tilmælanna auk þess að afhend skulu þau gögn sem rökstuðningur og ákvarðanaferlið byggja á.

Lesa meira...
 

Arion banki tekur af skarið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Arion banki hefur nú tekið afgerandi forystu meðal íslenskra banka í að leysa þann skuldavanda sem hefur hrjáð heimili þessa lands. Frjálsi fjárfestingabankinn og slitastjórn SPRON höfðu áður boðið viðskiptavinum sambærilegar tímabundnar lausnir vegna réttaróvissu gengistryggðra lána. Arion banki hefur greinilega unnið heimavinnuna sína en þeir funduðu síðast með fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna þriðjudaginn 6. júlí. Þeir voru óvenju léttir á sér á þeim fundi og hlustuðu vel en gáfu ekkert uppi um fyrirætlanir sínar. Þeir komu okkur því skemmtilega á óvart með þessu útspili.

Lesa meira...
 

Bréf til Dómsmála- og mannréttindaráðherra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti
Skuggasundi
150 Reykjavík

B.t. dómsmála- og mannréttindaráðherra


Efni: Ósk um að ráðherra beiti sér fyrir framgangi og hraðri úrlausn neðangreindra mála vegna ágreinings um lögmæti krafna:

Lesa meira...
 

Tilmæli HH til lántaka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

"Tilmæli" Hagsmunasamtaka heimilanna til lántaka vegna dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar

Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 92/2010 og 153/2010 er skýrt kveðið á um að óheimilt sé að tengja lánasamninga í íslensku krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla. Hagsmunasamtök heimilanna ásamt þorra löglærðra manna telja skýrt kveðið á um í dómunum, að lánasamningar þessir skulu standa óbreyttir að öðru leyti, þar með talin vaxtakjör og lánstími. Lánveitanda ber auk þess að endurgreiða lántaka það sem ofgreitt hefur verið.

Lesa meira...
 

Stuðningur við tilmæli talsmanns neytenda

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Tilkynning frá Hagsmunasamtökum heimilanna vegna tilmæla talsmanns neytenda

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir ánægju með tilmæli talsmanns neytenda til fjármálafyrirtækja “um að lægri föst krónutala verði innheimt til bráðabirgða af lánum sem vafi leikur á hvort falli undir fordæmisáhrif nýlegra gengisdóma Hæstaréttar”.  Telja samtökin að í tilmælum talsmanns neytenda séu neytendur látnir njóta vafans um útkomu í fordæmisgefandi dómsmálum sem síðar muni falla dómar í.  Sú aðferð sem lögð er til í tilmælunum, einfaldar allan útreikning greiðslna og kemur því um leið í veg fyrir ágreining lántaka og lánveitenda um þessa útreikninga.

Lesa meira...
 

"Ef vér slítum í sundur lögin, slítum vér og í sundur friðinn"

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna vinna að tilmælum sem verður beint til lántakenda vegna dóms Hæstaréttar. Tilmælin verða birt á heimasíðunni við fyrsta tækifæri. Stjórn HH gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að lántakar hafi bakhjarla í beinni árás fjármálastofnana á þeirra hag. SÍ og FME hafa nú tekið skíra afstöðu með lögbrjótandi fjármálafyrirtækjum gegn lántökum og virðast telja efnahagsstöðugleika byggjast á stuðningi við varglánastarfsemi. Þessari árás verður að hrinda og setja þessum stofnunum viðeigandi mörk.

Lesa meira...
 

Fréttatilkynning stjórnar HH vegna tilmæla SÍ og FME

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í morgun sendu Seðlabanki Íslands (SÍ) og Fjármálaeftirlit (FME) frá sér tilmæli til fjármálafyrirtækja um vaxtaviðmið vegna gengistryggðra lána. Hagsmunasamtök heimilanna furða sig á þessari íhlutun SÍ og FME í frjálsa samninga lántaka og lánveitenda. Ekkert í úrskurði Hæstaréttar 16.júní sl. gefur tilefni til þess og samtökin sjá ekki betur en að verið sé að hvetja fjármálafyrirtækin til lögbrota. Vilja þau því til stuðnings benda á að 36. gr. laga nr. 7/1936, samningalaga, og tilskipun ESB 93/13/EBE, neytendaverndartilskipun, veita neytendum ríkan rétt þegar kemur að ágreiningi um túlkun samninga. Í b-lið greinarinnar segir:

Lesa meira...
 

FME og SÍ afhjúpa sig

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ritstjóri vefs HH leitaði ljósum logum að viðeigandi mynd fyrir þessa grein. Hún fannst að lokum og er talin koma úr hugskoti lánþega og sýna Má Guðmundsson seðlabankastjóra eftir fréttamannafund 30. júní 2010SÍ og FME héldu sameiginlegan blaðamannafund í morgun (30. júní 2010). Gefnar voru yfirlýsingar og tilmæli til lánastofnana að notast við vexti Seðlabankans við útreikning gengistryggðra lána í stað þeirra vaxtakjara sem samningar lánanna segja til um. Báðar þessar stofnanir eru berar að stórfelldri vanrækslu í eftirliti með útlánum fjármálastofnana en kóróna nú vanrækslu fyrri ára með hvatningu til áframhaldandi lögbrota fjármálafyrirtækja.

Lesa meira...
 

Góður fundur í Iðnó

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sjá má fundinn hér á hjariveraldar.is

Fullt var út úr dyrum á borgarafundi sem haldinn var í Iðnó á mánudagskvöld 28. júní á vegum Borgarafunda. Pétur Blöndal, Gylfi Magnússon, Lilja Mósesdóttir og Guðmundur Andri Skúlason fluttu erindi og í kjölfarið komu spurningar úr sal og umræður. Marinó G Njálsson var fulltrúi Hagsmunasamtaka heimilanna í pallborði en Ragnar Baldursson hrl sat einnig fyrir svörum en við höfum ekki nöfn annarra sem voru í pallborði. Gunnar Sigurðsson stjórnaði fundinum.

Lesa meira...
 

Áskorun HH til stjórnvalda

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnvöld að frysta tafarlaust nægar eignir og fé í eigu fjármálastofnana til að standa undir skaðabótaábyrgð sem fyrirtækin kunna að hafa skapað sér í tengslum við nauðungarsölur byggðar á gengistryggðum neytendalánum (húsnæðislán og bílalán). Stjórnvöld þurfa einnig að taka til greina að lánasamningar byggðir á verðtryggingu kunna að vera í sömu stöðu í ljósi forsendubrests sem hlotist hefur af markaðsmisnotkun fjármálafyrirtækja.

Lesa meira...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

Fréttamenn óska eftir viðtölum

Þó nokkuð er um að fréttamenn leiti til samtakanna um að komast í samband við viðmælendur sem hafa orðið fyrir barðinu á kreppunni í einu eða öðru formi. Við viljum hvetja fólk til að senda okkur tölvupóst á heimilin@heimilin.is og gefa upp nafn og síma svo hafa megi samband þegar til okkar er leitað.

Nánar...

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Innskráning notenda