Það þykir sérdeilis góður kostur nú á tímum að vera lausnar-miðaður eins og gjarnan er sagt á fremur óþjálli nútíma íslensku. Orðið lausnari kemur líka í hugann, fagurt íslenskt orð sem segja má að sé nánast samheiti orðsins frelsari enda hafa bæði orðin verið notuð jöfnum höndum um Krist sjálfan í tímans rás. Nú hefur Íslandsbanki af rausnarskap sínum boðist til að gerast eins konar lausnarmiðaður lausnari lánþega á borð við mig og auglýsir linnulítið og feitu letri: „Lausnir Íslandsbanka fyrir einstaklinga“. Í mínu tilviki miðast lausnir bankans við það að lækka höfuðstólinn (eftirstöðvarnar sem hækkað hafa um 117% miðað við áætlun) af gengistryggða húsnæðisláninu mínu um 25%, breyta því í leiðinni í íslenskt lán með breytilegum vöxtum og lækka greiðslubyrðina fyrstu mánuðina um 36%. Er nema von að maður tárist af hugulseminni sem manni er sýnd á viðsjárverðum og þungbærum tímum.
Sögur af viðskiptum við lánastofnanir
Lausn á vanda Íslandsbanka með hjálp einstaklinga
- Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 00:25
- Hittni: 1596
Lánþegi hjá Arion ekki sáttur við lausnirnar
- Mánudagur, 07 Desember 2009 14:03
- Hittni: 1532
Mig langar að benda á mitt sjónarhorn varðandi húsnæðislán út frá “nýjustu lausnum” Kb/Arion banka....
En til að gera langa sögu stutta, þá t.d skuldaði ég c.a. 40% af markaðsvirði í húsinu mínu á sínum tíma... Svissaði síðan yfir í erlent... skuldaði enn 40%. Svo hrynur allt eins og þjóðin þekkir... Í dag á ég ekkert, get ekki selt húsið mitt, fasteignaverðið hrunið... eins og svo margir aðrir.
Síðan kemur hér eitt mikilvægt atriði... FASTEIGNAMAT RÍKISSINS HÆKKAR FASTEIGNAMAT Á HÚSINU MÍNU ÚR 53 MILLUM Í 69 MILLUR á þessu ári. Ég kvarta á þeim forsendum að ég búi ekki í fullbúni húsi, á eftir að klára hjá mér neðri hæðina, og bílskúr, ekki komin endanleg gólfefni, flísalagnir á böðum ekki búnar og annað. Fæ svarbréf í vikunni um að matið upp á 69 millur standi, þeir séu með kaupsamninga á öðrum húsum í mínu hverfi (Salahverfi í Kópavogi) sem hafi selst á svo og svo mikið á þessu ári. (Ég fæ nákvæmt yfirlit yfir hvaða hús og verðið á þeim).
Saga Valgeirs Sverrissonar
- Fimmtudagur, 26 Nóvember 2009 12:00
- Hittni: 1919
Fjármála - hörmungarsaga númer 199.981.000 Fyrir þá sem þola meira. Það er að bera í bakkafullan læk að greina frá hörmungum íbúðarkaupenda á Íslandi í gegn um tíðina. Samt er ég ákveðinn í að deila með þjóðinni mínum hörmungum, sem væri mér afar kært að heyrðu til undantekninga, en svo er ekki raunin. Til að byrja á sögunni, þá má rekja upphafið aftur til haustsins 1978. Þá keyptum ég og sambýliskona mín okkar fyrstu íbúð, þá var ég 18 og hún 17 ára gömul. Þessi íbúð er staðsett í gamla innbænum á Akureyri, 72 fermetrar. Þessi kaup fóru þannig fram að sparimerki sem þá voru og hétu fengust greidd út við íbúðakaup og voru útborgunin og svo yfirtaka lána þá óverðtryggð og verðtryggð. Þetta var alveg að gera sig og bjuggum við þarna í uþb 4 ár. Man ekki kaupverðið, en þetta var fyrir myntbreytinguna alræmdu 1981.
Viðvörun vegna gengistryggðra lána
- Sunnudagur, 22 Nóvember 2009 20:29
- Hittni: 1589
Þetta bréf barst frá Kristínu Snæfells Arnþórsdóttur:
"VIÐVÖRUN TIL YKKAR ALLRA MEÐ GENGISLÁNIN
Sem betur fer þá tók ég eftir þessum litlu stöfum sem bankinn hafði breytt frá upphaflegum samningi því ég var sjálf að skrifa undir breytingaskilmálana með 23% niðurfellingunni (Þeir eru svo almennilegir. ……………eða hitt þó….)
Til ykkar sem hafið tekið gengislán, þ.e. bíla eða íbúðarlán. Um þessar mundir bjóða bankarnir uppá ca 23% eða hvað sem það nú er hjá mismunandi banka - -niðurfellingu á upphaflegum lánasamningi og við það breytist lánið í ísl. lán. ATH AÐ NÝJI SAMNINGURINN ER MEÐ BREYTTU SAMNINGSNÚMERI, SEM GERIÐ YKKUR RÉTTLAUS VERÐI GENGISLÁNIN GERÐ ÓLÖGLEG. Áríðandi er að skrifa eftirfarandi klausu á ÖLL undirskrifuð skjöl – því það er einungis skrifuð breyting frá fyrri samningi á einu blaði – en ekki öðrum skjölum þar sem þú þarft að skrifa undir með 2 vottum:
Almennur fyrirvari vegna greiðslujöfnunar
- Fimmtudagur, 19 Nóvember 2009 17:02
- Hittni: 1176
Samtökin fengu í dag tölvupóst, þar sem sendandinn veltir fyrir sér hvort einhver gildra felist í því að afþakka greiðslujöfnun lána. Eða svo vitnað sé orðrétt í póstinn:
Var að velta fyrir mér hvort HH hafi velt fyrir sér þeim möguleika að lög um greiðslujöfnun séu einungis sett til að flokka frá þá sem hafa hugsað sér að reyna til hins ítrasta að borga af sínum lánum.
Ég tel að í kjölfar á því að stór hluti landsmanna afþakki úrræðið muni ríkisstjórnin koma með niðurfellingu á höfuðstóli lána til handa þeim sem taka þátt í greiðslujöfnuninni. Við hina verður sagt "því miður þú afþakkaðir greiðslujöfnunina og lýstir því þar með yfir að þú gætir borgað þínar skuldir".
Margrét sendi Landsbankanum þetta
- Laugardagur, 14 Nóvember 2009 14:25
- Hittni: 696
Sögur úr greiðsluverkfalli - Verum kurteis
- Föstudagur, 02 Október 2009 11:30
- Hittni: 1566
Okkur eru að berast töluvert af frásögnum af viðskiptum fólks við bankastofnanir í geiðsluverkfallinu. Nokkur vandræðagangur hefur verið með að fá greiddar úttektir hjá gjaldkerum og okkur borist nokkrar frásagnir af því. Stjórn HH vill beina þeim vinsamlegu tilmælum til almennings að sýna bankastarfsmönnum ávallt fyllstu kurteisi. Þeir sem verða fyrir ósanngirni af hálfu fjármálastofnunar hugleiða að sjálfsögðu hvort þeir haldi áfram viðskiptum við það tiltekna fyrirtæki. Það segir sig sjálft.
Hjá sumum hafa peningar verið dregnir af reikningum til greiðslu lána áður en laun bárust inn á reikninga þeirra. Þarna virðist smá taugatitringur á ferðinni. Við skulum bara halda ró okkar og hugleiða að einfaldlega "kjósa með fótunum" eins og stundum er sagt. Það er nægur tími, innistæður eru tryggðar upp að 3 milljónum eða þar um bil.
Við auglýsum hér með eftir frásögnum af viðskiptum og þær má skrá sem athugasemdir/umsagnir við þessa grein. Vinsamlega greinið frá nafni stofnunar en EKKI frá nöfnum starfsmanna. Við munum fylgjast með athugasemdum og taka út opinberar birtingar starfsmanna þar sem birting nafna geta brotið í bága við persónuvernd auk þess sem það væri einfaldlega ósanngjarnt. Höfum hugfast að aðgerðir beinast ekki gegn "starfsmanni á plani" heldur stjórnendum þessara stofnana og þeim sem bera ábyrgð á þeim.
Þórarinn tekur til varna fyrir sig og sína
- Miðvikudagur, 26 Ágúst 2009 19:33
- Hittni: 1715
Kæri lánveitandi!
Hér með tilkynnist að lántakandi yðar, Þórarinn Einarsson (kt. XXXXXX-XXXX) hefur ákveðið víkja til hliðar lánasamningum sínum við lánveitenda með því að draga allar lánatengdar greiðslur í óákveðinn tíma (greiðslustöðvun hófst að hluta í júní 2009) í samræmi við lög um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga frá 1936 nr. 7. en þar segir í 36. grein:
"Samningi má víkja til hliðar í heild eða að hluta, eða breyta, ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hann fyrir sig.”
Björn Kristján Arnarsson sendi þessa frásögn
- Sunnudagur, 28 Júní 2009 06:14
- Hittni: 897
Saga Margrétar og Marteins
- Sunnudagur, 03 Maí 2009 22:56
- Hittni: 1662
Heil og sæl
Hér er saga af venjulegu heimili á Íslandi í dag. Við erum kjarnafjölskylda, pabbi, mamma, tvö börn og hundur. Við búum í fjögurra herbergja íbúð í blokk og höfum búið í sömu íbúðinni í 10 ár. Í apríl í fyrra missti húsbóndinn vinnuna, hann var með þriggja mánaða uppsagnarfrest + sumarfrí. Hann fékk vinnu aftur í september, veiktist svo mjög alvarlega í lok september og átti auðvitað engin réttindi á nýjum vinnustað. Því fór sem fór og hann missti vinnuna sem hann var ný búinn að fá. Næstu mánuði á eftir þurftum við að treysta á sjúkrasjóð VR auk minna tekna. Í febrúar fékk hann aftur vinnu en þá höfðum við haft skertar tekjur frá því í ágúst og fjárhagsstaðan fór sífellt versnandi því við vorum auðvitað komin með „hala“ af vanskilum.
Gréta Jónsdóttir spyr "hvað er hægt að gera?"
- Mánudagur, 20 Apríl 2009 16:46
- Hittni: 1170






