Niðurstöður aðalfundar Hagsmunasamtaka heimilanna 2018
- font size decrease font size increase font size

Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2018 var haldinn 20. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð sem hér segir.
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður
- Vilhjálmur Bjarnason varaformaður
- Guðrún Bryndís Harðardóttir gjaldkeri
- Einar Valur Ingimundarson ritari
- Hafþór Ólafsson meðstjórnandi
- Sigríður Örlygsdóttir meðstjórnandi
- Sigurbjörn Vopni Björnsson meðstjórnandi
Varamenn: Þórarinn Einarsson, Björn Kristján Arnarson, Ragnar Unnarsson, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Guðrún Indriðadóttir, Stefán Stefánsson og Róbert Þ Bender.
Einar Valur Ingimundarson, Sigríður Örlygsdóttir, Sigurbjörn Vopni Björnsson og Björn Kristján Arnarson eru ný í stjórninni en aðrir í hópnum hafa starfað áður í stjórn samtakanna.
Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld yrðu óbreytt eða 3.500 kr. og valkvæð sem fyrr. Einnig voru gerðar breytingar á samþykktum samtakanna varðandi kjörgengi til aðalstjórnar auk lagfæringa á orðalagi tveggja ákvæða til að skerpa á þeim og gera skýrari.
Þá voru skoðunarmenn reikninga samtakanna, þær Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir og Sólveig Sigurgeirsdóttir, endurkjörnar.
Loks samþykkti aðalfundurinn eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna ítrekar áskorun samtakanna til forsætisráðherra, auk þess að skora á aðra ráðherra og alþingismenn alla að láta fara fram rannsókn á þeim aðgerðum sem stjórnvöld og fjármálafyrirtæki stóðu fyrir eftir hrun. Brýn þörf er á sambærilegri rannsóknarskýrslu og þeirri sem gerð var um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna en nú þarf að fjalla um aðgerðir stjórnkerfisins og bankakerfisins í kjölfar hrunsins og afleiðingar þeirra fyrir heimili landsins. Hagsmunasamtök heimilanna gera jafnframt þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að sem málsvara heimilanna verði þeim veitt aðkoma að framkvæmd slíkrar rannsóknar.
Við höfum beðið réttlætis í meira en 9 ár, þau mega ekki verða 10!