HOME_PAGE_TITLE

Lausar stöður

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna vantar fólk í eftirfarandi sjálfboðaliðastörf:

Almenn umsýsla, utanumhald skjala, svara tölvupóstum ofl. sem stjórnin óskar eftir. Almenn tölvukunnátta mikilvæg.

Ritsjóri vefs, þarf að kunna á Joomla vefumsjónarkerfið, hafa gott vald í íslensku og skilja stefnumál samtakann.

Tæknileg umsjón vefs, forritun útlits vefsíðu (Joomla template). Þekking á Joomla 1,5 og PHP.

Tæknileg umsjón með umræðuvef (uppsetning og tæknileg umsjón með umræðuvef).

Áhugasamir sendi upplýsingar og spurningar á 

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Umsögn Hagsmunasamtök heimilanna um frumvarp til laga um greiðsluaðlögun nr. 281.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Reykjavík, 12. febrúar 2009


Allsherjarnefnd Alþingis

Austurstræti 8-10
150 Reykjavík


Efni: Umsögn Hagsmunasamtök heimilanna um frumvarp til laga um greiðsluaðlögun nr. 281.


Almennt:
Hagsmunasamtök heimilanna telja að  frumvarp nr. 281 (eitt af þremur frumvörpum sem þau fengu til umsagnar) gangi  hvað lengst til að mæta þörfum heimila/fjölskyldna sem gætu þurft á greiðsluaðlögun að halda vegna greiðsluvanda. Samtökin setja því hér með fram tillögur að breytingum á frumvarpi nr. 281.


Þó að HH fagni frumvarpinu  þá vilja samtökin leggja til breytingar til aukins jafnræðis fyrir þá sem komast í greiðsluvanda. Meginmarkmið breytingatillagna þessara er að auka jafnræði og  koma í veg fyrir að einstaklingar séu útilokaðir frá því að geta nýtt sér þessa leið. Í fyrsta lagi á grundvelli þess hvers eðlis skuldir þeirra eru, í öðru  lagi  á grundvelli þess hvar er til þeirra stofnað, eða hverjir kröfuhafar eru,  og í þriðja lagi á grundvelli þess hvernig þeir hafa aflað sér tekna síðustu ár.  Að auki vilja Hagsmunasamtök heimilanna leggja áherslu á að frumvarpið getur aðeins leyst vanda þeirra sem eru hvað verst staddir og lenda í greiðsluþroti en alls ekki vanda allra heimila í landinu. Samtökin vilja því hér einnig koma áframfæri upplýsingum til allsherjarnefndar um áherslur og kröfugerð sína með tilliti til stöðu heimilanna í landinu vegna efnahagskreppunnar og fjármálahrunsins.

Lesa meira...

Verkefni vikunnar 8.-13. febrúar 2009

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Yfirlit yfir helstu viðfangsefni/verkefni vikunnar. Öll þau sem lögðu af mörkum mega fá hraustlegt klapp á bakið:
  • Viðtal formanns í Silfri Egils á sunnudag.
  • Fundur með bankastjóra Glitnis og fleiri stjórnendum á mánudag.
  • Umsögn um frumvarp um greiðsluaðlögun og fundur með Allsherjarnefnd Alþingis.
  • Fundur m. Forsvarsmönnum vinstri grænna (VG).
  • Fundur með forsætisráðherra.
  • Viðtal í morgunútvarpi Rásar 1.
  • Viðtal í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
  • Innlegg á borgarafundi á Akureyri.
  • Opinn fundur með félagsmönnum og innlegg Þórs Saari, hagfræðings.
  • Ákall til stjórnvalda um almennar aðgeðrir í þágu heimilanna í samstarfi við Félag fasteignasala, Húseigendafélagið, Húsnæðissamvinnufélagið Búseta á Norðurlandi og Talsmann neytenda:
  • Kynning á tillögum HH um bráðaaðgerðir vegna efnahagskreppunnar.
  • Stöðug uppfærsla á heimasíðunni og miðlun upplýsinga þar.

Birting spurninga til stjórnmálaflokka í Fréttablaðinu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Smellið hér til að sjá auglýsingu frá HH með spurningum til stjórnmálaflokkanna.

Sveinn Óskar Sigurðsson

Nauðungarsölur á Íslandi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Verðmyndun í nauðungarsölu - söguleg þróun og réttarbót áhætta og óvissa heimila á Íslandi.

Eftir Svein Óskar Sigurðsson, meistaranema við Háskóla Íslands.

"Þessa skýrslu tileinka ég hálfbróður mínum heitnum, Róberti Friðþjófi Sigurðssyni, sem lést 19. nóvember 2009. Þar fór réttsýnn og góður maður sem lét sig hagsmuni og sögu íslensku þjóðarinnar varða. Lagði hann ávallt áherslu á að læra yrði af reynslunni og sagan kenndi okkur að réttlæti væri ekki auðsótt heldur torsótt. Sagði hann mér eitt sinn að almenningur í hverju landi hefði oftast náð árangri og aukið mannréttindi. Þar getur lítil þjóð barist við stórveldi, þar getur hinn minni sigrað hinn stærri með réttlæti og sanngirni að vopni. Frændur Róberts í Finnlandi börðust við Rússa og höfðu sigur. Það, sem svo margt annað, kennir að það þarf að sækja rétt sinn því hann verður ekki á borð borinn, hvorki fyrir íslensku þjóðina né íslensk heimili."

"Rannsókn þessi gekk út á þá spurningu hvort núgildandi nauðungarsölulög væru að virka eins og löggjafanum gekk til með lagasetningunni á sínum tíma. Svarið er einfalt. Nauðungarsölulögin eru ekki að virka með þeim hætti sem lagt var upp með af hálfu löggjafans. Þessar eru ástæðurnar helstar:" Smellið hér til að skoða skýrsluna í heild sinni.