Á næstu dögum munu birtast í heimabanka valkvæmir rafrænir greiðsluseðlar hjá félagsmönnum Hagsmunasamtaka heimilanna. Skýrt skal tekið fram að greiðsla félagsgjalda er ekki skilyrði fyrir félagsaðild og eru því greiðsluseðlarnir valkvæmir og falla sjálfkrafa niður 1. apríl 2011. Félagsmenn geta einnig breytt styrktarupphæð hvort sem það er lækkun eða hækkun framlags. Að sjálfsögðu eiga engir vextir eða gjöld að falla á seðlana þó ekki sé greitt á uppsettum gjalddaga eða eindaga. Þessar dagsetningar eru eingöngu leiðbeinandi.
Mikill fjöldi félagsmanna hefur lagt fram frjáls framlög inn á reikning félagsins að eigin frumkvæði alveg frá stofnun samtakanna. Stjórn HH þakkar öll framlög, þau hafa eflt starf samtakanna mikið og satt best að segja gert starf samtakanna mögulegt. Ýmis fyrirtæki félagsmanna hafa einnig lagt samtökunum lið bæði með fjárframlögum og aðgangi að tíma og sérþekkingu starfsmanna. Þessi óeigingjörnu samfélagslegu framlög eru gríðarlega mikilvæg og við kappkostum að þau nýtist þjóðinni til farsældar.






