Bréf til banka

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna hafa útbúið drög að bréfi sem fólk getur sent til bankans síns til að mótmæla hækkun höfuðstóls lána sinna og krefja bankann um skýringu á breytingu á upphæð mánaðarlegrar greiðslu samanborið við greiðsluáætlun sem skrifað var undir.  Hvetja samtökin fólk til að senda bréfið á bankann sinn, hvort heldur á rafrænu formi eða bréflega.  Senda má það á yfirmenn, þ.m.t. bankastjóra,  eða millistjórnendur.  Samtökin beina því til fólks að hlífa almennu starfsfólki við þessu, a.m.k. fyrst um sinn. 

Drögin eru hér fyrir neðan og er það öllum frjálst til afnota.  Athugið að auðvelt er að setja nafn viðkomandi fjármálastofnunarinnar inn í staðinn fyrir tilvísun í banka.  Um er að ræða tvær útgáfur, önnur vegna upprisinna banka og hin þegar engin slík upprisa hefur átt sér stað.

Útgáfa 1:  Bréf til Arion, Íslandsbanka og Landsbanka

Ágæti viðtakandi

Undirrituð/aður óska eftir því við bankann, að hann taki til endurskoðunar upphæð höfuðstóls láns míns/lána minna hjá bankanum með hliðsjón af alvarlegum forsendubresti, sem bankinn, aðrar fjármálastofnanir í landinu og núverandi og/eða fyrrverandi eigendur þeirra báru ábyrgð á.  Tel ég að bankinn og fyrri eigendur hans vera valda að brestinum hvort heldur viljandi með fjárglæfrum og hreinum fjársvikum eða óviljandi með gáleysislegum viðskiptaháttum og vítaverðu vanhæfi. 

Óska ég eftir því, að bankinn sendi mér sundurliðaða skýringu á því hvers vegna greiðsluáætlun, sem ég undirritaði, hefur ekki staðist og hvers vegna brugðið er út af henni á jafn afgerandi hátt og raun ber vitni við innheimtu lánsins/lánanna.  Hafa skal í huga, að við undirritun greiðsluáætlunar/ana hafði ég til hliðsjónar spár greiningadeildar bankans um þróun vísitölu neysluverðs og gengis á þeim tíma.  Tel ég forsendur lánasamningsins byggðar á þeim upplýsingum.

Loks óska ég eftir að fá að vita hvort lánið mitt er/lánin mín eru skráð í eigu nýju eða gömlu kennitölu bankans, þannig að ég viti hvorum aðilanum ég eigi að stefna vegna ofangreinds forsendubrests. Ég hef frétt, að nýju bankarnir hafi í einhverjum tilfellum borið fyrir sig að röngum aðila hafi verið stefnt og þannig tafið framgang mála.  Vil ég koma í veg fyrir að það gerist í mínu tilfelli.

Svör óskast eins fljótt og auðið er.

 

Virðingarfyllst

Útgáfa 2:  Bréf til annarra fjármálastofnanna lífs eða "liðinna"

Ágæti viðtakandi

Undirrituð/aður óska eftir því við bankann, að hann taki til endurskoðunar upphæð höfuðstóls láns míns/lána minna hjá bankanum með hliðsjón af alvarlegum forsendubresti, sem bankinn, aðrar fjármálastofnanir í landinu og núverandi og/eða fyrrverandi eigendur þeirra báru ábyrgð á.  Tel ég að bankinn og fyrri eigendur hans vera valda að brestinum hvort heldur viljandi með fjárglæfrum og hreinum fjársvikum eða óviljandi með gáleysislegum viðskiptaháttum og vítaverðu vanhæfi. 

Óska ég eftir því, að bankinn sendi mér sundurliðaða skýringu á því hvers vegna greiðsluáætlun, sem ég undirritaði, hefur ekki staðist og hvers vegna brugðið er út af henni á jafn afgerandi hátt og raun ber vitni við innheimtu lánsins/lánanna.  Hafa skal í huga, að við undirritun greiðsluáætlunar/ana hafði ég til hliðsjónar spár Seðlabankans um þróun vísitölu neysluverðs og gengis á þeim tíma.  Tel ég forsendur lánasamningsins byggðar á þeim upplýsingum.

Svör óskast eins fljótt og auðið er.

Virðingarfyllst

Nú er bara að afrita aðra hvora útgáfuna og senda.  Sem viðskiptavinur viðkomandi fjármálastofnunar, þá getur stofnunin ekki verið þekkt fyrir að svara erindinu ekki.